Fara á efnissvæði
02. ágúst 2026

Kastaði sér yfir markið til að ná besta tímanum

Haukur Skúli Óttarsson úr Eyjafjarðarsveit stefndi svo hart að því að eiga betri tíma en pabbi sinn í tröppuspretti á Unglingalandsmótinu á Sauðárkróki í gær að hann þaut upp tröppurnar 163 og kastaði sér í átt að markinu. Þegar upp var staðið reyndist hann eiga besta tímann í hlaupinu, 21,73 sekúndur.

Pabbi hans fór sprettinn á 26 sekúndum, tíma sem meðalmaður getur vel montað sig af. 

Fjölskylda Hauks fjölmennti í tröppuhlaupið því tveir bræður hans hlupu líka ásamt afa þeirra og ömmu, sem bæði eru 64 ára. Afinn fór leiðina á góðum tíma eða 32 sekúndum. 

Tröppurnar sem um ræðir eru upp á Nafirnar á Sauðárkróki. Þær eru 163 talsins eða álíka margar og þátttakendur í hlaupinu sjálfu, sem voru 143. Lagt hefur verið til að tröppuhlaupið verði árlegur viðburður og verði kallað heimsmeistarakeppni í greininni. Ef af verður hlýtur Haukur að vera fyrsti heimsmeistarinn í tröppuhlaupi. 

Haukur er skráður í fjölda greina. Hann keppti meðal annars í grasblaki í gær og fleiri liðsíþróttum, júdó og glímu og ýmsum greinum frjálsíþrótta. Hann var einmitt nýbúinn með 800 metra hlaup í frjálsum þegar hann skellti sér í tröppusprettinn.

Hér fyrir neðan má sjá sjá upptöku af spretti Hauks upp tröppurnar auk mynda af fleiri þátttakendum í viðburðinum. Eins og sjá má á myndunum var skóbúnaður þátttakenda af ýmsu tagi.