Fara á efnissvæði
20. júlí 2023

Keppendur hugsi út fyrir kassann í kökuskreytingum

Tækifærin felast í hráefninu

Keppni í kökuskreytingum hefur verið á meðal þeirra fjölmennustu síðan greinin var kynnt til sögunnar fyrir nokkrum árum. Keppendur vinna með þema í kökuskreytingum. Þemað er fjölbreytileiki þetta árið. 

„Keppendur þurfa að hugsa út fyrir kassann og sjá tækifærin sem leynast í hráefninu sem unnið er með,“ segir bakarameistarinn Róbert Óttarsson, sem er sérgreinastjóri í kökuskreytingum. 

Róbert segir undirbúning fyrir keppni í kökuskreytingum ganga vel og fólk á Króknum fullt tilhlökkunar. 

 

Tugir íþróttagreina

Unglingalandsmót UMFÍ hefst fimmtudaginn 3. ágúst og stendur það fram á sunnudaginn 6. ágúst. Mótið er fyrir keppendur sem verða 11 ára á árinu og upp í 18 ára. Boðið verður upp á næstum 20 keppnisgreinar og mikinn fjölda allskonar íþróttagreina og viðburða sem öll fjölskyldan getur tekið þátt í. Þar á meðal verður blindafótbolti, badminton með LED-ljósakúlum, borðtennis og bandý, tónleikar á hverju kvöldi og margt, margt fleira. 

Keppni í kökuskreytingum verður í íþróttahúsinu á Sauðárkróki á sunnudeginum á milli klukkan 17:00-19:00. 
Keppendur þurfa að koma með áhöld til skreytinga sem henta hverjum og einum, svo sem stúta, sprautur, sleikjur, skeiðar, hnífa, skæri, gaffla og ýmis skreytingatól. Á staðnum fá keppendur kökubotna og smjörkrem, ýmsar gerðir af matarlit og kökuskraut. 

Einstaklingar geta tekið þátt og í tveggja manna liði. Veitt eru verðlaun hvoru tveggja í flokki einstaklinga og liðaflokki. 

„Svo þurfa keppendur að vera hugmyndaríkir og útfæra kökurnar eftir eigin höfði,“ segir Róbert. 

 

Hér eru allar upplýsingar um Unglingalandsmót UMFÍ og skráning