Kynntu nýtt fræðsluefni um konur í íþróttum
Nýtt fræðsluefni um konur í íþróttum og verkefni tengt því var kynnt í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal síðdegis í dag. Í kringum 80 manns mætti á kynninguna sem haldin var í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna, sem er 8. mars ár hvert.
Knattspyrnukonan Lára Hafliðadóttir kynnti verkefnið ásamt dr. Hafrúnu Kristjánsdóttur. Hafrún er prófessor og deildarforseti íþróttafræðideildar Háskólans í Reykjavík, en Lára er starfsmaður KSÍ á Vísindasviði og doktorsnemi í íþróttavísindum við Háskólann í Reykjavík með áherslu á íþróttakonur.
Konur í íþróttum er fræðslumyndbandsröð um og fyrir íþróttakonur. Verkefnið er samstarfsverkefni Háskólans í Reykjavík (HR), Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ), Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélags Íslands (UMFÍ).
Í myndböndunum fjalla sérfræðingar á sínu sviði um þá þætti sem einkenna íþróttakonur á mismunandi æviskeiðum. Markmið verkefnisins er að efla þekkingu og fræðslu, styðja við heilbrigði íþróttakvenna, hámarka frammistöðu þeirra og draga úr líkum á meiðslum.
Fræðsluefnið samanstendur af 44 myndböndum sem eru annars vegar miðuð að yngri íþróttakonum og hins vegar eldri íþróttakonum, þjálfurum, foreldrum og öðrum sem koma að íþróttastarfi.
Skoða má verkefnið og vídeóin á vefsvæðinu www.ru.is/konur.
Að kynningunni lokinni var boðið upp á léttar veitingar, spjall og tengslamyndun.