Fara á efnissvæði
13. maí 2026

Landsmót UMFÍ 50+ á Hellu árið 2027

Héraðssambandið Skarphéðinn (HSK) hefur fengið úthlutað Landsmóti UMFÍ árið 2027 og verður það haldið á Hellu, samkvæmt samþykkt stjórnar UMFÍ. Mótið hefur ekki áður verið haldið á Hellu. HSK hélt mótið síðast í Hveragerði árið 2017.

Landsmót UMFÍ hefur verið haldið frá árinu 2011 og fór það fyrst fram á Hvammstanga. Markmið mótsins hefur frá upphafi verið að skapa vettvang fyrir fyrir aldurshópinn 50 ára og eldri til þess að koma saman, njóta þess að vera í góðum félagsskap og keppa í fjölda íþróttagreina. 

Mótið er öllum opið sem verða 50 ára á árinu og eldri. Þátttaka er á eigin forsendum og ekki þarf að vera skráður í íþróttafélag.

Næsta Landsmót UMFÍ 50+ fer fram í Hrafnagilshverfi dagana 26. – 28. júní í samstarfi við Ungmennasamband Eyjafjarðarsveitar (UMSE). Þar er boðið upp á 18 keppnisgreinar, brennibolta fyrir 20 ára og eldri, opinnar hjólreiðakeppni fyrir alla aldurshópa og fjölskylduhlaups.

Aðalmótssvæðið er í Hrafnagilshverfi en einnig verður keppt í boccía og ringó á Akureyri og í golfi á Dalvík.

Auglýst verður mjög fljótlega eftir mótshöldurum fyrir Landsmót UMFÍ 50+ árið 2028 og 2029. 

 

Opnað verður fyrir skráningu á Landsmót UMFÍ 50+ á föstudag, 15. maí.

Hér eru allar upplýsingar um Landsmót UMFÍ í Hrafnagilshverfi og skráning.

Landsmót UMFÍ 50+