Fara á efnissvæði
15. júní 2026

Lögðu línurnar fyrir landsmót á næsta ári

Mikill hugur er í fólki á Suðurlandi fyrir Landsmóti UMFÍ 50+ þegar það fer fram á Hellu á næsta ári.

Framkvæmdanefnd mótsins settist niður til fundar í síðustu viku og skipaði niður í hlutverk. UMFÍ heldur mótið í samstarfi við Héraðssambandið Skarphéðinn (HSK) og Rangárþing ytra. 

Nefndina skipa:

  • Frá HSK: Guðmundur Jónasson, Guðríður Aadnegard, Anný Ingimarsdóttir og Guðrún Tryggvadóttir.
  • Frá Umf. Heklu: Ástþór Jón Ragnheiðarson og Ösp Viðarsdóttir.
  • Frá Rangárþingi ytra: Eiríkur Vilhelm Sigurðarson og Jóhann G. Jóhannsson.
  • Fulltrúi UMFÍ: Ragnheiður Högnadóttir. 

Á þessum fyrsta fundi nefndarinnar var samþykkt að Guðmundur verði formaður og Anný ritari. Rætt var um ýmis verkefni í aðdraganda móts, ætlunin er að kynna það fyrir þátttakendum og mótsgestum á Landsmóti UMFÍ 50+ sem fer fram í Hrafnagilshverfi nú í lok júní, rætt var um keppnisgreinar og kynningu fyrir fyrirtæki í Rangárþingi varðandi mögulegt samstarf og stuðning við mótið.

 

Góð skráning

Eins og áður segir fer Landsmót UMFÍ 50+ fram eftir nokkra daga. Það er í samstarfi við Ungmennasamband Eyjafjarðar (UMSE) og sveitarfélagið Eyjafjarðarsveit. 

Skráning er í fullum gangi og er hún afar góð. Opið er fyrir skráningu fram til loka dags föstudaginn 19. júní.

Allar upplýsingar um mótið er að finna á vefsvæði Landsmóts UMFÍ 50+:

Landsmót UMFÍ 50+