Fara á efnissvæði
28. september 2026

Lumarðu á góðu verkefni?

Við bendum á að nú er búið að opna fyrir innsendingu umsókna í Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ. Sjóðurinn styrkir félags- og íþróttastarf ungmennafélagshreyfingarinnar í samræmi við stefnu UMFÍ, m.a. með því að auka menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun í félagsmálum og félagsstarfi. Sjóðurinn styrkir hins vegar ekki tækjakaup, kaup á áhöldum og búnaði, kostnað við fundi og almennan rekstur félaga. 

Rétt til umsóknar úr sjóðnum eiga sambandsaðilar UMFÍ, aðildarfélög sem eru virk í starfi og deildir innan þeirra.

Styrkur er að öllu jöfnu aldrei hærri en 400.000 kr. Sjóðsstjórn getur þó veitt hærri styrki í undantekningartilfellum.

 

Alls konar verkefni

Í fyrra bárust 242 umsóknir í Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ, þar af 160 á seinni umsóknarfresti hans í fyrravetur. Alls fengu 195 umsóknir styrk í fyrra. Heildarúthlutun ársins nam rúmum 28,5 milljónum króna. 

Þar af fengu 122 umsóknir styrk í fyrravetur upp á tæpar 16 milljónir króna. 

Nú í vor bárust 124 umsóknir og hlutu 105 verkefni styrk upp á tæpar 16,3 milljónir króna. 

Dæmi um verkefni sem hlutu úthlutun í nóvember í fyrra: Fyrirlestur um töfra félagsstarfs, verkefni sem miðar að því að fjölga stelpum í íþróttum hjá Þrótti, fjöltyngd heimasíða ÍA, útgáfa og þýðing foreldrahandbókar hjá Ungmennafélagi Grundarfjarðar, ýmis þjálfaranámskeið, stofnun borðtennisdeildar á Stokkseyri, fyrirlestrar um næringu og margt fleira. 

 

Áherslur í úthlutun

Í samræmi við reglugerð sjóðsins leggur sjóðsstjórn áherslu á að veita styrki til:

 

  • Fræðslu- og forvarnaverkefna sem eru til þess fallin að auka þekkingu og fagmennsku innan héraðs, félags og/eða deildar. 
  • Þjálfara- og/eða dómaranámskeiða.
  • Verkefna sem stuðla að aukinni þekkingu og varðveislu á menningu og sögu héraðs, félags og/eða héraðs.
  • Verkefna og/eða viðburða sem hafa það að markmiði að efla þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða í íþróttastarfsemi.
  • Verkefni sem stuðla að stærðarhagkvæmni og samnýtingu í upplýsingatæknimálum. 

 

Smelltu hér og lestu meira um sjóðinn