16. júní 2017
Munið eftir 18. júní
Skráningu á Landsmót UMFÍ 50+ lýkur á miðnætti sunnudaginn 18. júní næstkomandi.
Skráning fer fram á vefsíðu UMFÍ á sérstakri skráningarslóð: https://umfi.felog.is/
Komi upp vandamál við skráningu á mótið um helgina er hægt að senda tölvupóst um skráningu og helstu upplýsingar á netfangið umfi@umfi.is eða hringt í þjónustumiðstöð UMFÍ á mánudaginn í síma 568 2929.
Munið eftir að skrá ykkur í tíma á Landsmót UMFÍ 50+ sem fram fer dagana 23. - 25. júní. Skráning stendur yfir!