Nú er opið fyrir umsóknir í Æskulýðssjóð
Búið er að opna fyrir umsóknir í Æskulýðssjóð. Sjóðurinn er fyrir börn og ungmenni á frá 6 – 25 ára aldurs og ætlaður til þess að Auka möguleika æskulýðsfélaga og samtaka á að bjóða fjölbreyttari starfsemi fyrir félaga sína.
Frestur til að sækja um styrki úr sjóðnum er til 15. febrúar 2018 klukkan 16:00.
Allir sem eru í forsvari fyrir æskulýðsfélög og æskulýðssamtök geta sótt um styrk úr sjóðnum. Ekki er gert ráð fyrir að hefðbundin íþróttafélög sæki um verkefni sem snúa að íþróttastarfsemi í þennan sjóð.
Áður fyrr var hægt að sækja um þrisvar í sjóðnum. Því hefur verið breytt og er aðeins hægt að sækja um styrk tvisvar á ári, 15. febrúar og 15. október.
Þessi verkefni fengu styrk
Á meðal verkefna sem fengu úthlutað styrkjum árið 2017 og tengjast UMFÍ með einum eða öðrum hætti eru:
UMFÍ – Mín eigin fyrirmynd – 500.000 kr
Æskulýðsvettvangurinn – Átak gegn stafrænu einelti – 1.000.000 kr.
UMFÍ – Forvarnir unga fólksins – 500.000 kr.
Æskulýðsvettvangurinn – Eineltisfræðsla – 500.000 kr.
Ungmennasamband Dalamanna og N-Breiðfirðinga (UDN) – Laugafjör-tengsl ungs fólks – 400.000 kr.