Nýtt og flott fræðslusafn HR komið í loftið
„Þetta er okkar viðleitni til að gera góða fræðslu aðgengilega fyrir íþróttahreyfinguna,“ segir Hafrún Kristjánsdóttir, prófessor við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík. Hún og starfsfólk deildarinnar hefur svipt hulunni af fræðslusíðu á netinu fyrir allt efni sem starfsfólkið hefur framleitt sjálft eða gert í samstarfi við ÍSÍ og UMFÍ, sérsambönd, ÍBR og fleiri.
Á vefnum er einnig upptökur af kennslu, þáttaraðir og hlaðvörp en deildin heldur úti tveimur hlaðvörpum, Íþróttarabbi HR og RU Sport Psych Podcast.
„Við starfsfólk íþróttafræðideildarinnar höfum unnið að þessu sem skemmtilegu hliðarverkefni samhliða okkar venjulegu störfum og okkur langar að gera þetta vel og gera gott betra. Það þarf ekki alltaf að finna upp hjólið, stundum dugar að nýta það sem þegar er til,“ segir Hafrún.
299 færslur af efni
Safnið er opið öllum og hugsað fyrir íþróttahreyfinguna í heild. Það má nýta í fræðslu innan félaga, sem ítarefni á þjálfaranámskeiðum eða sem hluti af námi þjálfara. Síðan er verk í vinnslu, lifandi vefur og eru allar ábendingar um það sem betur má fara vel þegnar. Svo bætum við við efni eins og það verður til. Við starfsfólk íþróttafræðideildarinnar höfum unnið að þessu sem skemmtilegu hliðarverkefni samhliða okkar venjulegu störfum og okkur langar að gera þetta vel og gera gott betra.
Um mikið efni er að ræða um margvísleg sjónarhorn íþrótta. Færslurnar eru 299 talsins, sem voru áður dreifðar hér og þar um netið og hefur því nú verið safnað saman á einn stað. Á vefsvæðinu er það flokkað og búið að gera það leitarbært.
Þar er líka „Fræðsla vikunnar“ þar sem einn fyrirlestur eða hlaðvarpsþáttur er dreginn fram úr safninu.
Öll eru hvött til að skoða safnið, nýta efnið og deila því áfram.
Hér er síðan: https://fraedsla.ithrottafraedi.is