Ringó í miklum vexti
Þær Margrét Björnsdóttir, formaður og einn stofnenda íþróttafélagsins Glóð, í Kópavogi og Þórdís Guðrún Bjarnadóttir, gjaldkeri félagsins, kíktu við í þjónustumiðstöð UMFÍ í dag með fjölda ringóhringja, sem notaðir verða á Landsmóti UMFÍ 50+ í Hrafnagilshverfi í Eyjafjarðarsveit eftir tæpar tvær vikur.
Að sögn þeirra Margrétar og Guðrúnar hefur iðkendum í ringói fjölgað mikið í gegnum tíðina. Hringirnir sem þær komu með eru þeir einu sem leyfðir eru í leiknum hér á landi.
Í þjónustumiðstöðinni hittu þær Flóakonuna Aldísi Baldursdóttur, sem jafnframt er búsett í Kópavogi. Þær hafa keppt í ringói á mótunum í gegnum tíðina og hefur Aldís tekið mörg símtöl þeirra þessa dagana sem lenda í veseni við skráningu á mótið eða leita frekari upplýsinga.
Landsmót UMFÍ 50+ fer fram dagana 26. – 28. júní og fer að mestu fram í Hrafnagilshverfi. Einstaka fjölmennar greinar fara fram annars staðar, eins og ringóið sem fer fram í íþróttahöllinni á Akureyri. Þar hefjast leikar strax á eftir setningu mótsins.
Nú er aldeilis farið að styttast í mótið. Síðasti dagur til að skrá sig á mótið er 19. júní næstkomandi.
Laugardagskvöldið 27. júní verður matar- og skemmtikvöld, sem hefur notið mikilla vinsælda á Landsmóti UMFÍ 50+. Veislan fer fram á veitingastaðnum Vitanum á Akureyri.
Á matar- og skemmtikvöldinu verður boðið upp á steikarhlaðborð, skemmtiatriði og söng. Stulli og Tóti spila svo undir dansi. Gert er ráð fyrir að stuðið vari fram á miðnætti.
Veislustjóri verður Ívar Helgason.
Miðaverð á matar- og skemmtikvöldið er 6.400 krónur.
Upplýsingar og skráning á Landsmót UMFÍ 50+
Hér má sjá myndir frá fyrri mótum.