Fara á efnissvæði
14. september 2026

Sambandsráðsfundur UMFÍ

Sambandsráðsfundur UMFÍ fer fram á Hótel Ísafirði laugardaginn 10. október næstkomandi. Fundartími er áætlaður frá klukkan 10:00 til 16:00. 

Sambandsráðsfundur er æðsta vald í málefnum UMFÍ á milli sambandsþinga, sem haldin eru annað hvert ár.

Sambandsráðsfund sitja formenn sambandsaðila UMFÍ eða varamenn þeirra, ásamt stjórn UMFÍ eða varamönnum hennar.

Samkvæmt lögum UMFÍ á hver sambandsaðili eitt atkvæði. Undanfarin ár hafa sambandsaðilar skráð 1-2 aðila á fundinn. Í þeim tilfellum er mikilvægt að skrá báða aðila á fundinn, þó svo að annar þeirra fari með atkvæði. 

Fulltrúar sambandsaðila þurfa að senda tillögur ef einhverjar eru fyrir 15. september á netfangið umfi@umfi.is.