Fara á efnissvæði
03. ágúst 2026

Síðasta mót Ómars

Unglingalandsmóti UMFÍ var slitið á Sauðárkróki fyrir miðnætti í gærkvöldi. Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, heiðraði þar Ómar Braga Stefánsson, framkvæmdastjóra móta UMFÍ, en þetta er síðasta mótið sem hann leiðir eftir rúm 20 ár. 

Fyrsta mótið sem Ómar stýrði var á Sauðárkróki árið 2004 og síðan þá hafa þau verið á ýmsum stöðum á hverju ári. Það er við hæfi að síðasta mót hans við stjórnvölin er einmitt á Sauðárkróki. Ómar hefur jafnframt verið framkvæmdastjóri Landsmóts UMFÍ 50+ og fulltrúi UMFÍ fleiri viðburðum, á borð við Drulluhlaup UMFÍ sem verður í Mosfellsbæ um miðjan ágúst.

„Þúsundir barna og ungmenna hafa á liðnum árum tekið þátt í Unglingalandsmóti og notið þeirra upplifana sem mótið skapar. Ómar Bragi hefur um árabil verið einn af helstu drifkröftum mótsins. Hann hefur lagt metnað sinn í þróun þess, staðið vörð um gildi þess og haft skýra sýn á hvernig það gæti áfram verið vettvangur þar sem ungt fólk hittist, hreyfir sig, eignast vini og skapar minningar,“ sagði Jóhann Steinar og benti á að það birtist í gleði mótsgesta, vináttunni sem þar myndast og öllum þeim jákvæðu minningum sem kynslóðir þátttakenda taka með sér út í lífið.

Jóhann benti jafnframt á að enginn vinni verkefni af þessari stærðargráðu einn, það krefjist kvöld- og helgarvinnu, ferðalaga og ótal stunda sem annars væru með fjölskyldunni. Að því sögðu bað Jóhann þau Ómar og María Björk Ingvadóttur, konu hans, til að koma upp saman. Mótsgestir fögnuðu þeim gríðarlega.

Unglingalandsmót UMFÍ á Sauðárkróki gekk afskaplega vel. Þátttakendur á aldrinum 11-18 ára voru tæplega 1.100 talsins af öllu landinu sem kepptu í meira en 20 íþróttagreinum á daginn og sóttu ýmsa afþreyingu milli leikja og á kvöldin. Á mótinu var hugað að því að bjóða upp á eitthvað fyrir sem flesta, þar á meðal foreldrablak fyrir slitin síðdegis í gær.

Lögregla og björgunarsveit var á vakt alla helgina og hafði hún tiltölulega lítið að gera. 

Mótinu var slitið með tónleikum Skagfirðinganna í Úlfi Úlfi, brekkusöng og flugeldasýningu af Nöfunum ofan við íþróttasvæðið á Sauðárkróki. 

 

Á myndinni hér að ofan má sjá Auði Ingu Þorsteinsdóttur, framkvæmdastjóra UMFÍ, ásamt Ómari, Maríu og Jóhanni Steinari með mótsgesti í bakgrunni. Jón Gautur Hannesson tók myndina fyrir UMFÍ. 

Hér má sjá nokkrar myndir frá mótinu.