Síðasti dagur til að skrá í greinar
Þá er runninn upp síðasti dagur til að skrá sig á Unglingalandsmót UMFÍ sem fram fer á Sauðárkróki um næstu helgi.
Í dag er því lokafrestur til að klára skráningu í greinar og lið á mótinu. Nú er líka kjörið tækifæri til að bæta við greinum og láta verða af því að prófa grein sem þig hefur dreymt um.
Minnið líka vinkonu og vini til að skrá sig í lið. Þau sem ekki eru í liði verða sett í stórskemmtileg lið í sínum aldursflokkum.
Allt er að smella saman fyrir mótið og gera klárt. Hópur sjálfboðaliða ásamt fulltrúum björgunarsveitarinnar setti upp tvö stór tjöld í gærmorgun á grasflötinni á milli íþróttahússins og gervigrasvallarins. Þetta eru veitingatjald og stóra partítjaldið, sem hefur í gegnum tíðina verið í miklu uppáhaldi hjá mótsgestum. Þar mun fara fram fjölbreytt skemmtun og allir tónleikarnir á mótinu.
Skráning á Unglingalandsmót UMFÍ á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina er í fullum gangi og getur fólk skráð sig og sína til þátttöku fram á miðnætti á sunnudag 26. júlí.
Svona skráir þú þig
Við höfum fengið nokkrar fyrirspurnir um það hvernig eigi nú að skrá í greinar á mótinu.
Það er gert svona:
- Hér skráirðu þátttakanda á mótið og kaupir aðgang að tjaldsvæði fyrir alla fjölskylduna: Smella hér
- Þegar þú ert búin/n að skrá þátttakanda á mótið í Abler, þá ættirðu að fá tölvupóst með hlekk á. Hlekkurinn vísar á skráningu í greinar. Ef þú hefur ekki fengið hlekkinn eða vilt fara beint á skráningarsíðuna í gegnum appið þá þarftu að fara þessa leið:
- Opnaðu Abler–appið.
- Farðu inn á prófílinn þinn.
- Smelltu á hnappinn: „Verslanir og markaðstorg“.
- Veldu „Markaðstorg“.
- Veldu „Ungmennafélag Íslands“.
- Ýttu á upphafsstafi/prófílmynd þína (efst í hægra horninu).
- Farðu í „Skráningar“.
- Finndu Unglingalandsmótið og ýttu á „Sjá meira“.
- Veldu „Smelltu hér til að skrá þig í greinar“.
Nú ættir þú að geta skráð þig og þína í greinar og/eða skoðað þær sem þú eða þátttakandinn er þegar skráð/ur í.
Ef eitthvað er óljóst eða bras á einhverju, það bara virkar ekki eins og það á að gera, þá mælum við með að þú smellir í tölvupóst á netfangið umfi@umfi.is.
Ertu búin/n að kynna þér hvaða greinar eru í boði? Margir þátttakendur skrá sig í fleiri en eina grein.