Fara á efnissvæði
22. apríl 2026

Sjá Landsmót UMFÍ 50+ sem hápunkt heilsueflingar

„Við erum með æfingar fyrir allt fólk 60 ára og eldra sem hefur áhuga á að styrkja sig og bæta næstu sex vikurnar. Okkur langar til að hafa hápunkt þar sem við getum fagnað áfanganum og setjum markmiðið á Landsmót UMFÍ 50+ í Eyjafjarðarsveit í júní,“ segir íþróttafræðingurinn Bjarney Gunnarsdóttir. 

Hún stendur fyrir námskeiði í heilsueflingu 60 ára og eldri tvisvar í viku í Virkinu hjá Víkingi í Safamýri. Námskeiðið hefst mánudaginn 27. apríl og stendur fram til 11. júní. Áhugasamir sem vilja koma og taka þátt geta mætt hvenær sem er á tímabilinu. 

Eins og sést á auglýsingu Bjarneyjar fara æfingar fram á mánudögum og fimmtudögum í Virkinu í Safamýri á milli klukkan 10:30 og 11:30.

Verðið er 13.900 krónur.

Í hádeginu í dag var kynningarfundur á námskeiðinu og voru undirtektirnar góðar. 

Á námskeiðinu verður boðið upp á styrktarþjálfun, þolþjálfun og ýmsa líkamsrækt auk gönguæfinga. 

„Við stefnum svo á að bjóða upp á fastar æfingar í Virkinu frá haustinu,“ segir Bjarney.

 

Meiri upplýsingar um námskeiðið

Um Landsmót UMFÍ 50+

Landsmót UMFÍ 50+ fer fram dagana 26. - 28. júní 2026. Aðalmótssvæðið er í Hrafnagilshverfi en einnig verður keppt í fjölmennum greinum eins og boccía og ringó á Akureyri og í golfi á Dalvík.

Boðið er upp á fjölbreytt úrval greina á Landsmóti UMFÍ 50+.  Eins og dagskráin lítur út núna verður hægt að taka þátt í badmintoni, boccia, bridds, frjálsum íþróttum, golfi, pílu, pokavarpi, pútti, pönnukökubakstri, ringói, skák, skotfimi, stígvélakasti, sundi og hjólreiðum. Stefnt er að því að hafa opnar greinar á borð við frisbígolf, utanvegahlaup og brennibolta, auk sýningar í hestaíþróttum. 

 

Smelltu hér og lestu allt um Landsmót UMFÍ 50+