Stefnumótun: Árangur næst með gleðina að vopni
„Það er gott að geta átt samtal við forvígisfólk í íþróttahreyfingunni og finna saman út úr því hvar bæta má starfið,“ segir Bjarni Malmquist Jónsson, formaður Ungmennafélagsins Visis í Suðursveit og formaður Ungmennasambandsins Úlfljóts (USÚ). Hann var á meðal rúmlega þrjátíu þátttakenda á fundi um stefnumótun íþróttahreyfingarinnar sem fram fór í Sláturhúsinu á Egilsstöðum í gær.
Þetta var fyrsti fundur um stefnumótunina á landsbyggðinni og markar næstu skref í þessari vinnu. Á fundinn mættu ýmsir hagsmunaaðilar sem tengjast skipulögðu íþróttastarfi í íþróttahéruðunum báðum, það er að segja innan sambandssvæðis Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands (UÍA) og Ungmennasambandsins Úlfljóts (USÚ). Breið þátttaka var á fundinum og umræðurnar góðar.
Fulltrúar ÍSÍ og UMFÍ héldu erindi á fundinum auk Valdimars Gunnarssonar, verkefnastjóra Allir með, sem er samstarfsverkefni beggja áðurnefndra og Íþróttasambands fatlaðra. Jafnframt var þátttakendum skipt í nokkra vinnuhópa.
Ólafur Stefánsson, fyrrum landsliðsfyrirliði í handknattleik, heimspekingur og meistaranemi í íþróttasálfræði, hélt erindi um gleðina í íþróttum og áhrif hennar á árangur og brottfall úr skipulögðu íþróttastarfi. Að sögn Ólafs er mikilvægt að halda gleðinni og ástríðunni fyrir íþróttum eins lengi og hægt er og mikilvægt að missa börn og ungmenni of snemma í afreksmennsku og sérhæfingu.
„Ég kvitta undir það,“ segir Bjarni og rifjar upp tímana þegar hann var sjálfur á fullu í íþróttum og árangur fólks á vellinum. „Gleðin er grunnur alls. Hún er svo mikilvægt. Gleðin og ástríðan getur spornað við brottfalli og með því getum við haldið fólki lengur í íþróttahreyfingunni.
Næstu fundir og fundartími:
• Höfuðborgarsvæðið - Mán. 9. mars - kl. 15:00 – 17:00 - Íþróttamiðstöðin Laugardal
• Höfuðborgarsvæðið - Mið. 11. mars - kl. 17:00 – 19:00 - Íþróttamiðstöðin Laugardal
• Suðurnes - Mán. 16. mars - kl. 17:00 – 19:00 - Íþróttahúsinu Sunnubraut í Reykjanesbæ.
• Suðurland - Þri. 17. mars - kl. 17:00 – 19:00 - Stracta Hótel á Hellu.
• Norðurland vestra - Mán. 23. mars - kl. 17:00 – 19:00 - Fjölbrautaskóli NV á Sauðarkróki.
• Norðurland eystra - Þri. 24. mars - kl. 16:30 – 18:30 - Íþróttahöllin á Akureyri.
• Vesturland - Fim. 9. apríl - kl. 18:00 – 20:00 - Hótel Vesturland í Borgarnesi.
Hægt er að skrá sig á fundina hér að neðan:
Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá fundinum.