Fara á efnissvæði
21. október 2024

Tillögur til að efla almenningsíþróttir

Starfshópur mennta- og barnamálaráðherra hefur skilað tillögum sínum að eflingu almenningsíþróttastarfs. Þær eru í sjö liðum.

Fram kemur í frétt um málið á vefsvæði Mennta- og barnamálaráðuneytis um tillögurnar að íþróttaiðkun gegnir mikilvægu hlutverki í viðhaldi andlegrar og líkamlegrar heilsu, ekki síst þegar fólk eldist. Hún leiði til heilsusamlegs lífernis og fyrirbyggi sjúkdóma. Þannig auki iðkunin farsæld og framleiðni í samfélaginu.

Starfshópurinn var skipaður í mars 2023 til að leggja mat á markmið og árangur gildandi stefna og áætlana á sviði íþrótta og til hvaða ráðstafana íþróttafélög geta gripið til að halda fólki í íþróttum og virkja eldri aldurshópa. Honum var falið að skilgreina hvaða þætti þurfi að efla í almenningsíþróttastarfi og hvernig það verði best gert. Þá var hann fenginn til að skoða íþróttalög og mögulegar breytingar á þeim með áherslu á almenningsíþróttir og heilsueflingu í anda lýðheilsumarkmiða stjórnvalda.

Guðmunda Ólafsdóttir sat í starfshópnum fyrir hönd UMFÍ.

 

Í starfshópum voru:

  • Gauti Grétarsson, formaður, án tilnefningar
  • Örvar Ólafsson, án tilnefningar
  • Halla Karen Kristjánsdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
  • Guðmunda Ólafsdóttir, tilnefnd af Ungmennafélagi Íslands
  • Hildur Karen Aðalsteinsdóttir, tilnefnd af Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands
  • Þráinn Hafsteinsson, tilnefndur af Menntavísindasviði Háskóla Íslands
  • Sveinn Þorgeirsson, tilnefndur af Háskólanum í Reykjavík

Þá má sjá hér á myndinni að ofan með Ásmundi Einari Daðasyni, mennta- og barnamálaráðherra, sem tók við skýrslunni.

 

Tillögur starfshópsins eru eftirfarandi:

  • Draga fram mikilvægi skólaíþrótta og hreyfingar á hverjum degi í skólastarfi.
  • „Vertu með leiðinni“, hreyfingarátak fyrir 13 ára og eldri innan íþróttahreyfingarinnar með það að markmiði að ná til fleiri iðkenda og halda þeim lengur virkum í íþróttastarfi.
  • Efling íþróttaframboðs fyrir eldri borgara í samstarfi við sveitarfélög.
  • Lagt er til að ábyrgð á málaflokki almenningsíþrótta/lýðheilsu verði betur skilgreind og meiri áhersla verði lögð á raunverulegar aðgerðir og eftirfylgni með þeim. Hópurinn telur að greina þurfi betur stöðuna varðandi almenningsíþróttir hér á landi svo hægt sé að ráðast í markvissari aðgerðir sem skila árangri.
  • Vel menntaðir kennarar/þjálfarar eru lykilaðilar í eflingu faglegs íþrótta- og lýðheilsustarfs. Þessa lykilaðila þarf að meta að verðleikum og þeim þurfa að bjóðast laun samkeppnishæf við aðra kennslu, möguleika á endurmenntun og góðar aðstæður til kennslu.
  • Koma þarf á faglegum stuðningi við þjálfara og leiðtoga á vettvangi. Þar geta svæðisstöðvar íþróttahéraða haft hlutverki að gegna.
  • Tryggja jafnræði til þátttöku í öllum íþróttum og hreyfingu, óháð efnahag eða öðrum bakgrunni.

 

Nánar má lesa um tillögurnar í: 

Skýrsla starfshóps um eflingu almenningsíþróttastarfs.