Fara á efnissvæði
09. nóvember 2026

Tilnefndu sjálfboðaliða

Dagur sjálfboðaliða

Árið 1985 ákváðu Sameinuðu þjóðirnar að 5. desember yrði helgaður sjálfboðaliðum. Síðan þá hefur dagurinn verið haldinn hátíðlegur víða um heim ár hvert.

Íþróttahreyfingin á Íslandi tekur að sjálfsögðu þátt. Íþróttahéruð og sérsambönd eru hvött til að tilnefna sjálfboðaliða úr sínum röðum og lyfta þannig upp því fólki sem sinnir ómetanlegu starfi innan íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar. Svæðisstöðvar íþróttahéraða styðja við verkefnið og kynningu þess á hverju svæði.

Markmiðið er að vekja athygli á mikilvægu starfi sjálfboðaliða og þakka þeim fyrir framlag sitt til íþróttahreyfingarinnar. Tilgangurinn er ekki að meta hver leggur mest af mörkum. Hann er að beina kastljósinu að sjálfboðaliðum og minna á að framlag hvers og eins skiptir máli.

Svona fer tilnefningin fram

Hægt er að tilnefna sjálfboðaliða, ásamt rökstuðningi, til og með 27. nóvember. Dregið verður úr tilnefningum fyrir hvert landsvæði í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal 1. desember. Niðurstöðurnar verða kynntar í kringum Dag sjálfboðaliðans á miðlum íþróttahreyfingarinnar.

Sá sjálfboðaliði sem dreginn verður út á hverju landsvæði fær lítinn þakklætisvott fyrir framlag sitt og verður fjallað um hann á miðlum UMFÍ og ÍSÍ. Hver einstaklingur fer aðeins einu sinni í pottinn, óháð því hversu margar tilnefningar hann fær.

Smelltu hér til þess að tilnefna sjálfboðaliða.

Við hvetjum alla innan íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar til að deila hlekknum.