14. júlí 2026
Tökum þátt í Gleðigöngunni 2026
Það er alltaf tækifæri til að fagna fjölbreytileikanum. Gleðigangan fer fram laugardaginn 8. ágúst næstkomandi og er hún stór hluti Hinsegin daga ár hvert.
Aðildarfélög UMFÍ geta verið sýnileg í Gleðigöngunni, tekið þátt í viðburðinum og gengið í sínum búningum. Þátttakan er aðildarfélögum að kostnaðarlausu og UMFÍ mun leggja til fána sé þess óskað.
UMFÍ hvetur forsvarsfólk þeirra félaga sem hafa áhuga á að taka þátt í göngunni í Reykjavík eða á öðrum stöðum á landinu eða vilja á einhvern hátt koma að skipulagi viðburðarins geta haft samband við UMFÍ á netfangið umfi@umfi.is.
Óskað er eftir skráningu í Gleðigönguna fyrir 20. júlí.