Undirrita samstarfssamning um eflingu íþróttastarfs
Vesturbyggð og Héraðssamband Hrafna-Flóka (HHF) hafa undirritað nýjan samstarfssamning sem miðar að því að styrkja íþróttastarf á svæðinu og efla þátttöku í íþróttum og hreyfingu meðal íbúa sveitarfélagsins.
Gerður Björk Sveinsdóttir, sveitarstjóri Vesturbyggðar, og Birna Hannesdóttir, formaður HHF, undirrituðu samninginn.
Hann markar mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu íþróttastarfs í Vesturbyggð og felur meðal annars í sér aukið samstarf um þróun íþrótta- og lýðheilsuverkefna, stuðning við starf íþróttafélaga og aðgerðir sem auðvelda þátttöku barna og ungmenna í íþróttum.
Fram kemur á vefsvæði Hrafna-Flóka um samninginn að íþróttastarf gegnir mikilvægu hlutverki í samfélaginu. Það stuðli að bættri líkamlegri og andlegri heilsu, styrki félagsleg tengsl og hafi jákvæð áhrif á uppvöxt barna og ungmenna. Með samningnum sé lögð áhersla á að efla samstarf sveitarfélagsins og íþróttahreyfingarinnar til að tryggja áframhaldandi þróun og stöðugleika í starfinu.
Samstarfið felur meðal annars í sér að styðja við starfsemi íþróttafélaga á svæðinu, efla þátttöku í íþróttum og skapa aðstæður sem gera íbúum kleift að stunda hreyfingu og íþróttir óháð aldri eða aðstæðum.
Við undirritun samningsins lýstu fulltrúar beggja aðila ánægju með samstarfið og sögðu samninginn mikilvægan grunn fyrir áframhaldandi uppbyggingu íþróttastarfs í Vesturbyggð. Markmiðið er að skapa enn betri tækifæri fyrir íbúa til þátttöku í íþróttum og hreyfingu og þannig styrkja samfélagið til framtíðar.