Fara á efnissvæði
29. júlí 2019

Unglingalandsmót undirbúið í geggjuðu veðri á Höfn

„Allar hendur eru á lofti í geggjuðu veðri hér á Höfn,“ segir Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri Unglingalandsmóts UMFÍ sem fram fer á Höfn í Hornafirði um verslunarmannahelgina. Hann var í dag ásamt forystufólki hjá Ungmennasambandinu Úlfljóti (USÚ) og Ungmennafélaginu Sindra og fjölda sjálfboðaliða að gera klárt fyrir alla þátttakendur og gesti mótsins. Á annað þúsund þátttakendur sækja Unglingalandsmót UMFÍ á hverju ári ásamt foreldrum og systkinum og munu yfir 100 sjálfboðaliðar vinna við mótið.

 

Í gær og í dag hefur mótssvæðið verið gert klárt. Á morgun verður svo farið í að skipta upp tjaldsvæðinu. Skráningarfrestur á mótið rennur út í kvöld og liggur þá fyrir hvað sambandsaðilar UMFÍ þurfa mikið pláss. Hvorki er skilyrði að vera í íþróttafélagi né ungmennafélagi og verður að sjálfsögðu að gera ráð fyrir þátttakendum og fjölskyldum þeirra á tjaldsvæðinu.

 

Meira um Unglingalandsmót UMFÍ

Unglingalandsmót UMFÍ er vímulaus íþrótta- og fjölskylduhátíð sem haldin hefur verið frá árinu 1992 hefur unnið sér fastan sess hjá fjölskyldum um allt land sem helsti viðburðurinn um verslunarmannahelgi.

Mótið er fyrir 11-18 ára þátttakendur sem reyna við sig í fjölda stórskemmtilegra íþróttagreina. Vinsælustu greinar mótsins eru knattspyrna, frjálsar íþróttir og körfubolti. En 18 aðrar íþróttagreinar verða í boði. Þar á meðal eru bogfimi, hlaupaskotfimi, frisbígolf, glíma, götuhjólreiðar, motocross, stafsetning, upplestur og meira að segja kökuskreytingar.

 

Margt í boði fyrir alla fjölskylduna

Þótt keppnisgreinar eru ætlaðar 11-18 ára þá er margt í boði fyrir alla fjölskylduna sem kemur á mótið. Í námunda við íþróttasvæðið verður sett upp leikjatorg og verður þar hægt að fara í brennibolta, fótboltapool, ringó, ganga á stultum og margt fleira.

Aðeins kostar 7.500 krónur að skrá þátttakanda á mótið. Inni í gjaldinu fylgir aðgangur að tjaldsvæði fyrir alla fjölskylduna. Aðgangur og notkun á rafmagni er ekki innifalið í verðinu.

Auk alls þess sem fylgir aðgangi að mótinu verða tónleikar á hverju kvöldi á meðan Unglingalandsmótinu stendur. Á mótinu kemur fram helsta tónlistarfólk þjóðarinnar. DJ Sura, sem hefur gert það gott með Cyber og Reykjavíkurdætrum, setur kvöldvökurnar strax fimmtudaginn 1. ágúst. Kvöldið eftir stíga á stokk rappbræðurnir í Úlfur Úlfur og Salka Sól, síðan koma Bríet og Evróvisjónstjarnan Daði Freyr. Una Stef og hljómsveit og GDRN loka svo mótinu sunnudagskvöldið 4. ágúst.

 

Skráning og frekari upplýsingar á www.ulm.is

Mótið á Facebook

 

Fleiri myndir frá gærdeginum og vinnunni í dag