Fara á efnissvæði
08. júní 2026

Úthluta 16,3 milljónum króna

Fræðslu- og verkefnasjóður UMFÍ hefur úthlutað tæpum 16,3 milljónum króna til 105 verkefna. Þetta er fyrsta úthlutun ársins af tveimur. Alls bárust 124 umsóknir í sjóðinn, sem styrkir félags- og íþróttastarf íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar með það að markmiði að auka menntun og þekkingu fólks innan hreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun í félagsmálum og félagsstarfi.

Verkefnin sem hlutu styrk að þessu sinni eru af ýmsum toga, allt frá verkefnum sem hugsuð eru til þess að virkja ungmenni og fullorðna í fjölbreyttri útivist og hreyfingu úti við, til stofnunar blakdeilda og borðtennisdeilda, til námskeiðahalds fyrir þjálfara og dómara og til styrktar söguritun félaga. 

Verkefnin eru fjölbreytt og hefur umsóknum í sjóðinn fjölgað töluvert í gegnum árin. Í fyrra veitti sjóðurinn 41 milljón króna til 195 verkefna.

Rétt til umsóknar úr sjóðnum eiga sambandsaðilar UMFÍ, aðildarfélög sem eru virk í starfi og deildir innan þeirra. Einnig eiga stjórn og nefndir UMFÍ rétt á að sækja um styrk úr sjóðunum.

Umsækjendur sem hljóta styrk þurfa að skila inn skýrslu á ákveðnu lokaskýrsluformi og senda til þjónustumiðstöðvar UMFÍ á netfangið umfi@umfi.is. 

Umsóknarfrestir eru tveir á ári. Að vori er opnað fyrir sendingu umsókna í sjóðinn 1. apríl ár hvert og hægt að senda umsóknir inn til og með 1. maí. Að hausti er opnað fyrir umsóknir 1. október og er hægt að senda umsóknir inn til og með 1. nóvember.
 


Meira um Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ