Fara á efnissvæði
01. október 2024

Vellíðan í lífi barna og ungmenna

Forvarnardagurinn 2024 fer fram í 19. sinn á morgun. Hann verður settur með formlegum hætti með málþingi í Inngunnarskóla í Grafarvogi. Forvarnardagurinn er haldinn á hverju hausti og er sjónum beint sérstaklega að ungmennum í 9. bekk grunnskóla og á fyrsta ári í framhaldsskóla. Yfirskrift Forvarnardagsins nú er: Hugum að verndandi þáttum og vellíðan í lífi barna og ungmenna með kærleik. 

Málþing Forvarnardagsins hefst kl.10.00 og verður streymt fyrir almenning, en streymið kemur inn á morgun á vef Forvarnardagsins.

Meira um Forvarnardaginn og streymið á Facebook

 

Dagskrá málþings:

Skólastjóri býður gesti velkomna

Fundarstjórn – Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðstjóri lýðheilsusviðs Embættis landlæknis

Til máls taka:

  • Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir
  • Landlæknir, Alma D. Möller
  • Formaður borgarráðs, Dagur B. Eggertsson
  • Margrét Lilja Guðmundsdóttir, þekkingarstjóri hjá Planet Youth: Ekkert um ykkur án ykkar
  • Rödd ungmenna: Ernir Daði Arnbergz Sigurðsson og Karen Hulda Finnsdóttir fulltrúar úr ungmennaráði UMFÍ

Fjölmiðlar eru hvattir til að mæta á staðinn og fá tækifæri til að taka viðtöl við ungmenni, sem klár eru til að veita viðtöl, og annað framsögufólk, sem verður á staðnum.

Embætti landlæknis fer með verkefnastjórn Forvarnardagsins og samstarfsaðilar eru Embætti forseta Íslands, Reykjavíkurborg, Rannsóknir og greining, Planet Youth, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Samfés, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samstarf félagasamtaka í forvörnum, Bandalag íslenskra skáta, Ríkislögreglustjóri og Heimili og skóli. 

Um Forvarnardaginn
Verkefni Forvarnardagsins hafa frá upphafi verið byggð á rannsóknum. Skólar fá aðgang að verkefnum í glæruformi þar sem kennarar fara yfir verndandi þætti og hvað hægt er að gera til að auka vellíðan.

Rannsóknir hafa sýnt að samvera með fjölskyldunni, þátttaka í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi og það að leyfa heilanum að þroskast án neikvæðra áhrifa eru verndandi þættir fyrir áhættuhegðun. Nemendur nýta þetta efni svo til umræðu í hópavinnu og skrá hugmyndir sínar um hvað veitir þeim vellíðan og hefur áhrif á góða heilsuhegðun, um samskipti og samveru með foreldrum og fjölskyldu, áhrif félagsþrýstings o.fl. Einnig ræða nemendur í framhaldsskólum um þá ákvörðun að drekka ekki eða seinka því að byrja að drekka áfengi og hvaða þættir hafa áhrif á þá ákvörðun.

Nemendum í þátttökuskólum (9. bekk og á fyrsta ári í framhaldsskóla) býðst að taka þátt í verðlaunaleik en nánari upplýsingar um leikinn verða aðgengilegar á vefsíðu Forvarnardagsins www.forvarnardagur.is 2. október. Forseti Íslands afhendir verðlaun við hátíðlega athöfn á 
Bessastöðum síðar á árinu.