Fara á efnissvæði
13. nóvember 2026

Við getum ekki svarað tölvupóstum...

Alvarleg bilun í tölvupóstþjónustu Microsoft Outlook hefur valdið truflunum hjá notendum víða um heim. Bilunin nær líka til UMFÍ. Eins og fólk kannast við er flestum tölvupóstum alla jafna svarað fljótt og vel. En ekki í dag. 

Bilunin veldur því að starfsfólk UMFÍ – eins og fjölmargir aðrir - geti hvorki tekið á móti tölvupósti né lesið hann. Það getur tafið svör og afgreiðslu erinda. Við biðjum fólk um að sýna biðlund.. Þau sem eiga brýnt erindi við UMFÍ eru beðin um að hringja í þjónustumiðstöð í síma 568 2929.