Viðar Halldórsson: „Erum við á réttri leið?“
Jafnvægið á milli keppni og uppeldis í íþróttastarfi barna á Íslandi er að raskast og hreyfingin stendur á tímamótum. Þetta kom fram í erindi Viðars Halldórssonar, prófessors við Háskóla Íslands. Hann hélt fyrsta erindið á fundi um íþróttastarf barna þar sem sjö fyrirlesarar úr fræðasamfélaginu, íþróttafélögunum, þjálfun og hópi foreldra fjölluðu um stöðuna. Að fundinum stóðu Íþróttabandalag Hafnarfjarðar (ÍBH), Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR) og Ungmennasamband Kjalarnesþings (UMSK) í samstarfi við svæðisfulltrúa íþróttahreyfingarinnar á höfuðborgarsvæðinu.
Markaðsvæðing og atvinnuvæðing leiksins snúast í vaxandi mæli um það að finna og móta hæfileika fárra á kostnað fjöldans. Afleiðingarnar séu meira æfingaálag, minni tími fyrir frjálsan leik og önnur áhugamál, aukinn kostnaður fjölskyldna og ópersónulegra starf sem ýti undir brottfall. Viðar hvatti íþróttahreyfinguna til að standa vörð um gildin sem gerðu íslenskt íþróttastarf eftirtektarvert: Að það sé fyrir alla og sé jákvætt, uppbyggilegt og manneskjulegt.
Á fundinum var rætt um ólíka reynslu af íþróttastarfi barna, sýn á íþróttahreyfinguna, áskoranir og framtíðin.
Á meðal annarra sem héldu erindi voru Daði Rafnsson, fagstjóri afrekssviðs Menntaskólans í Kópavogi, Einar Ingi Hrafnsson, framkvæmdastjóri Aftureldingar, Ólafur Stefánsson handknattleiksmaður og fleira til, Pálmar Ragnarsson körfuknattleiksþjálfari, Rakel Dögg Bragadóttir, handknattleikskona og foreldri, Sólný Pálsdóttir foreldri iðkanda, og Viðar.
Módel sem vakið hefur athygli
Viðar benti á að íslenska módelið hafi vakið athygli víða. Sjálfur hafi hann kynnt það í fjórum heimsálfum. Sérstaða þess felist í áherslu á grasrótina, íþróttir fyrir alla, í stað þess að beina fjármunum á efsta þrep afreksstarfsins. Þegar vel takist að blanda saman keppni og uppeldi sé kerfið stórkostlegt.
Hann rifjaði upp að árið 2017, þegar karlalandsliðið í knattspyrnu var á hátindi, hefði hann varað við því í greininni „Frægðin er fallvölt“ að árangursrík lið yrðu oft fórnarlömb eigin velgengni.
Eitt prósent eða 99?
Viðar spurði hvort íþróttastarfið væri sniðið að þörfum þess eina prósents barna sem nær alla leið eða hinna 99 prósentanna. Hann tók dæmi úr eigin lífi:
„Strákurinn minn var að hætta í fótbolta. Það var enginn sem spurði af hverju hann hætti. Það var enginn sem hafði samband. Það var enginn sem sýndi honum áhuga,“ sagði Viðar og varaði við ópersónulegu kerfi.
Að sögn Viðars ber enginn einn ábyrgð á þróuninni. Hún sé afleiðing smárra og hversdagslegra ákvarðana sem teknar eru af góðum hug, til dæmis að bæta við einni æfingu á viku. Sé það gert hjá einu félagi þá fylgi fleiri í kjölfarið og fyrr en varir eru öll félögin farin að bæta við æfingum fyrir börnin. Saman skapi slíkar ákvarðanir vanda. Það sama kemur upp þegar hluti félaga fer að selja bjór á leikjum eða bjóða upp á aukaæfingar fylgi hin í kjölfarið.
„Við þurfum að hafa áherslu á keppni og árangur en við þurfum ekki síður að hafa áherslu á uppeldið,“ sagði Viðar. Aðeins brotabrot barna verði afreksfólk en öll eigi þau að njóta góðs af íþróttastarfinu.
Hér að neðan má sjá fleiri myndir frá fundinum.