Fara á efnissvæði
20. maí 2026

Vilt þú vinna að eflingu íþróttastarfs á Vestfjörðum?

ÍSÍ og UMFÍ leita að einstaklingi með brennandi áhuga á íþróttastarfi í starf svæðisfulltrúa á Vestfjörðum. Tveir svæðisfulltrúar vinna að eflingu íþróttastarfs á átta svæðum um allt land. Á Vestfjörðum eru tveir og er nú starf annars þeirra laust til umsóknar. 

Staðsetning starfsins er á sambandssvæði eftirfarandi íþróttahéraða: Héraðssambandi Bolungarvíkur (HSB), Héraðssambandinu Hrafna-Flóka (HHF), Héraðssambandi Strandamanna (HSS) og Héraðssambandi Vestfirðinga (HSV).

Starfsemi svæðisstöðva byggir á sjálfstæðum vinnubrögðum og drifkrafti þar sem samvinna, fagmennska og frumkvæði í sterkri liðsheild er grundvallaratriði.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinna við innleiðingu á stefnu og markmiðum íþróttahreyfingarinnar og stjórnvalda í íþróttamálum.
  • Efling íþróttastarfs á svæðinu með áherslu á þátttöku barna og ungmenna.
  • Auka tækifæri og þátttöku barna og ungmenna með stuðningsþarfir, af efnaminni heimilum og af erlendum tungumála- og menningarbakgrunn í íþróttastarfi. 
  • Skipulagning og stýring verkefna.
  • Þróun og hugmyndavinna.
  • Samvinna með íþróttahéruðunum á Vestfjörðum, aðildarfélögum og öðrum hagaðilum.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur.
  • Reynsla og þekking af starfi innan íþróttahreyfingarinnar er kostur.
  • Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
  • Skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
  • Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að vinna í teymi
  • Frumkvæði og drifkraftur
  • Hreint sakavottorð í samræmi við ákvæði í íþróttalögum.

Frekari upplýsingar um Svæðisstöðvar íþróttahéraða er að finna á heimasíðu verkefnisins siu.is.
 

Umsóknarfrestur er til og með 1. júní nk.

Umsókn þarf að fylgja ferilskrá og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið.

 

Ítarlegri upplýsingar um starfið veita framkvæmdastjórar ÍSÍ og UMFÍ

Andri Stefánsson (andri@isi.is) og Auður Inga Þorsteinsdóttir (audur@umfi.is)

Tekið er við öllum umsóknum um starfið á Alfreð. 

Sækja um starfið