Wigan með Gísla Marteini á Unglingalandsmóti
Afar vinsælt er hjá þátttakendum á Unglingalandsmóti UMFÍ að búa til liðsheiti og sérstaka liðsbúninga. Engin undantekning er á því á Unglingalandsmóti UMFÍ sem fram fer á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina.
Mörgum hefur reyndar brugðið í brún þegar lið eru kölluð upp í hátalarakerfi mótsins, að Holræsisrotturnar, Sultuslökusulturnar og Naflakusk eigi að mæta á tiltekin svæði í knattspyrnu og grasblak á hinum og þessum tíma.
Nöfnin eru fjölmörg og eftirtektarverð, eins og Wigan með Gísla Marteini, Ostasmurterta, Júlía og skósveinarnir, Mostra Boyz, Gandálfur, Queens, Fjórar á Flugi, Gudda og Grameðlurnar, Titanic sundklúbburinn, IceGuys, Egilsstaðabeljurnar, Ostaslaufurnar, Sigmas, Elding, Skytturnar, Made in sveitin juniors, Einhyrningarnir, Loftboltarnir, Naflakust, Skvísurnar og svo má lengi telja.
Þetta er auðvitað ekki krafa en bæði flottir búningar og hressilega skemmtileg nöfn gefa mótinu lit og vekja mikla athygli á einstaka liðum.
Hér má sjá nokkrar myndir af skemmtilegum liðum á Sauðárkróki í dag og liðsmönnum Wigan með Gísla Marteini sem tóku á honum stóra sínum.