Ýmis ráð inn í haustið
Nú er nýtt starfsár að hefjast og fjöldi barna og ungmenna um allt land að stíga inn á æfingar á ný. Til að starfið gangi vel og sé öruggt fyrir öll sem taka þátt vilja ÍSÍ, UMFÍ og svæðisfulltrúar íþróttahéraða hvetja félög til að huga að eftirfarandi atriðum áður en veturinn fer á fullt.
Móttaka iðkenda
Góð upplifun á fyrstu æfingu getur skipt sköpum í áframhaldandi íþróttaiðkun barna og því mikilvægt að sett sé fram skýrt verklag sem unnið er eftir innan félags um hvernig taka eigi á móti nýjum iðkendum.
Hvert félag ætti að hafa skýra móttökuáætlun fyrir nýja iðkendur, foreldra, þjálfara og sjálfboðaliða, þannig að allir viti til hvers er ætlast af þeim og hvert má leita ef eitthvað kemur upp á.
Hér er að sjá myndband um móttöku barna á æfingar
Sakavottorð
Félög sem starfa með börnum og ungmennum bera ábyrgð á að tryggja að þjálfarar, starfsfólk og sjálfboðaliðar hafi skilað inn sakavottorði — eða veitt félaginu skriflegt leyfi til að afla þessara upplýsinga sjálft úr sakaskrá. Þetta er lögbundin skylda og eitt mikilvægasta skrefið í að tryggja öruggt umhverfi fyrir börn í starfinu.
Hér er að finna eyðublöð og leiðbeiningar sem félög geta nýtt sér:
Ráðningasamningar
Nú er einnig sá tími að mörg félög eru að ráða til sín nýja þjálfara fyrir veturinn. Mikilvægt er að gera skriflegan ráðningasamning við alla starfsmenn, hvort sem um er að ræða þjálfara í fullu starfi eða hlutastarfi — það skýrir réttindi og skyldur beggja aðila frá fyrsta degi.
Hér er að finna sniðmát að ráðningasamningum:
Verkfærakista íþróttahreyfingarinnar
Á vefsvæðinu siu.is er að finna verkfærakistu íþróttahreyfingarinnar. Á síðunni hafa félög aðgang að fjölbreyttum og hagnýtum gögnum sem gott er að kynna sér og nýta beint í starfinu — þar á meðal ýmis sniðmát, gátlista, leiðbeiningar og viðbragðsáætlanir sem tengjast meðal annars sakavottorðum, móttöku nýliða og viðbrögðum við erfiðum málum. Félög þurfa því ekki að finna upp hjólið sjálf heldur geta sótt tilbúið efni sem þegar hefur verið unnið fyrir íþróttahreyfinguna í heild.
Á síðunni er hægt að skruna og skoða efni og/eða velja flipann skjöl undir verkfærakistu. Þar er leitarhnappur til þess að auðvelda alla leit. Ef það eru einhver gögn sem ykkur vantar hvetjum við ykkur til að hafa samband við ykkar svæðisfulltrúa og fá ráðleggingar.
Til viðbótar
Ýmislegt fleira er gott að hafa á hreinu. Þar á meðal eru viðbragðsáætlun ef upp koma erfið mál en þær má nýta til að skýra stefnu gegn einelti og áreitni. Við minnum jafnframt á að Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs starfar sjálfstætt og óháð íþróttahreyfingunni og tekur við ábendingum um óviðeigandi hegðun, ofbeldi eða áreitni í starfinu.
Með því að huga að þessum atriðum tryggjum við saman að íþróttastarfið verði áfram öruggur, faglegur og skemmtilegur vettvangur fyrir börn og ungmenni um allt land. Ekki hika við að hafa samband við svæðisfulltrúa ykkar íþróttahéraðs ef spurningar vakna.