Dagur, tími og staðsetning
Dagsetning: Föstudagur 26. júní.
Tímasetning: 18:00 - 19:00.
Staðsetning: Hjólað er frá Dalborg í Hrafnagilshverfi.
Kynja- og aldursflokkar
Allir 20 ára og eldri geta tekið þátt.
Keppnisfyrirkomulag / reglur
Þeir sem eru yngri en 50 ára þurfa að senda skeyti á umfi@umfi.is til þess að skrá sig til leiks. Senda þarf upplýsingar um nafn og kennitölu.
Þátttökugjald er 6.000 kr.
Götuhjólreiðar.
Upphaf er við Dalborg í Hrafnagilshverfi og endað þar líka.
A. ca.15 km. Hjólað að Grundakirkju og til baka.
B. ca. 40 km. Hjólað að malbiksenda og til baka.