Vinnulegur um val á mótsstað
Til að geta haldið Landsmót UMFI 50+ þarf að uppfylla ákveðnar lágmarkskröfur.
Mótshaldari og samfélagið
Keppendur geta orðið allt að 1.000 talsins og gestir mótsins um 5.000. Mótshaldari þarf að sýna fram á að hann hafi styrk og bakland til að framkvæma mótið. Mótshaldari þarf einnig að gera grein fyrir almennri þjónustu í samfélaginu, svo sem heilbrigðisþjónustu, löggæslu, veitingasölu og gistiþjónustu. Aðkoma og stuðningur sveitarfélagsins þarf að liggja fyrir með umsókn um mótið.
Tjaldsvæði
Tjaldsvæði skal vera fyrir a.m.k. 200 manns, með aðgengi að rafmagni og hreinlætisaðstöðu.
Gistiaðstaða
Gistiaðstaða þarf að vera fyrir 150 – 200 manns í næsta nágrenni.
Keppnisgreinar og keppnissvæði
Umsækjandi þarf að tilnefna keppnisgreinar og keppnisaðstöðu í umsókn sinni. Skoða þar dreifingu á keppnissvæðum og taka afstöðu í þeim málum. Keppnissvæðin skulu öll vera sem næst aðalkeppnissvæðinu.
Keppnisgreinar & keppnisaðstaða
- Almenningshlaup
- Boccia: Íþróttahús 18x36 eða stærra eða stór salur
- Bridds: Salur eða skólastofur
- Frjálsíþróttir: Keppnisaðstaða getur verið á möl, tartani eða grasi. Það þarf að vera steyptur kasthringur fyrir kúlu og kringlu sem og hlaupabraut fyrir 60m. hlaup.
- Golf: 9 holu völlur í hámarki 40 km. fjarlægð frá aðalmótsstað
- Hestaíþróttir: Hestaíþróttavöllur
- Hringdansar: Íþróttahús 18x36 eða stærra eða stór salur
- Hjólreiðar
- Línudans: Íþróttahús 18x36 eða stærra eða stór salur
- Pútt: Púttvöllur
- Ringó: Íþróttahús 18x36 eða stærra eða góður grasflötur / sparkvöllur
- Skák: Salur eða skólastofur
- Starfsíþróttir: Salur eða skólastofur
- Sund: Sundlaug a.m.k. 16 mtr.
- Sýningar: Íþróttahús 18x36 eða stærra eða góður salur
- Þríþraut
Áhöld og tæki þurfa að vera klár fyrir allar keppnisgreinar.
Sérgreinastjórar og starfsfólk
Við hverja keppnisgrein þarf að vera hæfur sérgreinastjóri sem heldur utan um sína grein. Hann fær með sér annað starfsfólk við framkvæmd greinarinnar.
Samþykkt á 48. sambandsþingi UMFÍ 2013 í Stykkishólmi.