Fara á efnissvæði

Landsmót UMFÍ 50+

Upplýsingar

Landsmót UMFÍ 50+ er blanda af íþróttakeppni og annarri keppni, hreyfingu og því að fá fólk á besta aldri til að hafa gaman saman. Mótið verður haldið í Fjallabyggð (Siglufirði og Ólafsfirði) dagana 27. - 29. júní 2025 og er það opið öllum sem verða 50 ára á árinu og eldri. Þátttakendur þurfa ekki að vera skráðir í íþróttafélag, allir geta tekið þátt og á sínum forsendum.

Mótsgjald og skráning

Þátttökugjald er 5.500 krónur og fyrir það er hægt að taka þátt í öllum greinum mótsins. Þegar greiðslu á þátttökugjaldi er lokið fær viðkomandi hlekk í tölvupósti þar sem hægt er að ganga frá skráningum í einstakar greinar. Ekki þarf að skrá sig sérstaklega til þess að taka þátt í opnum greinum, bara mæta og hafa gaman! 

Greitt er sérstaklega fyrir miða á matar- og skemmtikvöld sem fram fer á laugardagskvöldinu á Rauðku, Siglufirði. Verð er 5.900kr. Boðið verður upp á rútuferðir frá Ólafsfirði og til baka að því loknu. 

Athygli er vakin á því að UMFÍ nýtir netföng sem skráð eru við skráningu til þess að koma á framfæri upplýsingum um viðburðinn. Með skráningunni gefa þátttakendur heimild fyrir því að nýta þær myndir og myndbönd sem kunna að vera teknar á viðburðinum og nýta þær í útgáfustarfsemi UMFÍ á hvaða formi sem það kann að vera. Með skráningu gefa þátttakendur jafnframt leyfi til þess að nöfn þeirra séu birt á heimasíðu UMFÍ vegna birtingu ráslista og úrslita. 

UMFÍ tryggir ekki einstaklinga á viðburðum UMFÍ. 

Mótsstaður

Mótið verður haldið á Siglufirði og Ólafsfirði dagana 27. – 29. júní 2025 í samstarfi við Ungmenna- og íþróttasamband Fjallabyggðar og sveitarfélagið Fjallabyggð. 

Mótssvæði

Mótið fer fram bæði á Siglufirði og Ólafsfirði.

Dagskrá

Mótið hefst á föstudegi með keppni í boccia. Laugardagur og sunnudagur eru undirlagðir með keppnisgreinum. Landsmóti UMFÍ 50+ lýkur síðan um miðjan sunnudag.

Keppnisgreinar

Keppt verður í allskonar greinum - en svo eru allir velkomnir að koma og prófa og taka þátt í hinu og þessu. 

Keppnisgreinar mótsins eru: badminton, boccia, bridds, brennibolti, frjálsar íþróttir, golf, píla, pokavarp, pútt, pönnukökubakstur, ringó, skotfimi, stígvélakast og sund. 

Tjaldsvæði

Hótel og gistiheimili eru bæði á Ólafsfirði og Siglufirði. Ljómandi góð tjaldsvæði eru einnig á báðum stöðum og í hjarta bæjanna.

Nánari upplýsingar

Framkvæmdastjóri mótsins er Ómar Bragi Stefánsson. Netfang omar@umfi.is Sími 8981095