Fara á efnissvæði

Keppnisgreinar

Borðtennis

Íþróttahús. Sunnudagur kl. 9:30 - 15:00

Tímaplan

  • 15-18 ára strákar kl. 09:30
  • 15-18 ára stelpur kl. 10:30
  • 11-14 ára stelpur kl. 12:00
  • 11-14 ára strákar kl. 13:30

Þeir strákar sem eru að keppa í fótbolta til klukkan 15:00 geta mætt í borðtennis í íþróttahúsinu að því loknu. 

Aldurs- og kynjaflokkar

  • 11 - 14 ára drengir.
  • 11 - 14 ára stúlkur.
  • 15 - 18 ára drengir.
  • 15 - 18 ára stúlkur.

 

Keppnisfyrirkomulag / reglur

Einliðaleikur í riðlum, hver lota er 11 stig, en vinna þarf lotur með 2ja stiga mun. 

Keppnisfyrirkomulagið er þannig að keppt verður í riðlum og fara efstu tveir leikmenn úr hverjum riðli og keppa í einföldum útslætti (ef fleiri en einn riðill er í flokki). Raðað verður í riðla samkvæmt styrkleikalista, sbr. 17. gr. keppnisreglna BTÍ. Mótið gildir til stiga á styrkleikalistanum. Leikmaður þarf að vinna 3 lotur til að vinna viðureignina, bæði í riðlunum og í útsláttarkeppninni.

Leikið verður með hvítum Stiga 3 stjörnu kúlum á sex keppnisborðum og veitir UMFÍ medalíur sem verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki.

 

Úrslit

Úrslit birtast HÉR.