Úrslit
Úrslit er að sjá hér (GolfBox).
- 11 - 13 ára piltar 9 punkta Holukeppni.
- 11 - 13 ára stúlkur 9 punkta Holukeppni.
- 14 - 15 ára piltar 18 holu Punktakeppni.
- 14 - 15 ára stúlkur 18 holu Punktakeppni.
- 16 - 18 ára piltar 18 holu Höggleikur.
- 16 - 18 ára stúlkur 18 holu Höggleikur.
Verðlaunaafhending fer fram á laugardagskvöldinu kl. 20:45 í Bragganum við Sláturhúsið.
Almennar upplýsingar
Fimmtudagur 31. júlí
Tímasetning: 14:00 - 21:00.
Keppni byrjar kl. 14:00 hjá þeim sem fara 9 holur og í kjölfarið hefjast 18 holurnar.
*Athugið að þar sem mótinu var flýtt og ef rástíminn sem ykkur er úthlutað hentar ekki þá er hægt að senda tölvupóst á mótshaldara - gfhgolfkl@gmail.com til að fá að fara seinna af stað.
Staðsetning: Ekkjufellsvöllur
Opin, ókeypis pútt og vippkeppni fyrir alla fjölskylduna fer fram á fimmtudeginum og hefst kl. 14:30 og er opin til 18:00.
Verðlaunaafhending fer fram á laugardagskvöldinu kl. 20:45 í Bragganum við Sláturhúsið.
Aldurs- og kynjaflokkar
- 11 - 13 ára piltar (48). 9 holur.
- 14 - 15 ára piltar(53). 18 holur.
- 16 - 18 ára piltar(53). 18 holur.
- 11 - 13 ára stúlkur (48). 9 holur.
- 14 - 15 ára stúlkur (48). 18 holur.
- 16 - 18 ára stúlkur (48). 18 holur.
Keppnisfyrirkomulag
- 11 - 13 ára piltar, punktakeppni með forgjöf
- 14 - 15 ára piltar, punktakeppni með forgjöf (einnig veitt verðlaun fyrir besta skor án forgjafar - fyrir höggleik)
- 16 - 18 ára piltar, höggleikur án forgjafar
- 11 - 13 ára stelpur, punktakeppni með forgjöf
- 14 - 15 ára stelpur, punktakeppni með forgjöf (einnig veitt verðlaun fyrir besta skor án forgjafar - fyrir höggleik)
- 16 - 18 ára stelpur, höggleikur án forgjafar
Reglur
Mæting er í golfskálann a.m.k. hálftíma fyrir auglýstan rástíma (sem ætti að koma í síðasta lagi á netið um 21:00 kvöldið fyrir keppni.)
Ef keppendur eru jafnir í verðlaunasæti í höggleik þá yrði 1. holan leikin aftur í bráðabana. Þar til úrslit ráðast. Í punktakeppnum er litið til betri seinni 9, svo seinustu 6, svo seinustu 3, til að skera úr um úrslit ef jafnt er. Almennir keppnisskilmálar GSÍ gilda á mótinu.
Flokkar 14 - 15 ára og 13 ára og yngri
Kylfuberar eru heimilir, sbr. 8. lið almennra keppnisskilmála GSÍ og golfreglu 6-4.
* Mikilvægt er að amk eitt foreldri fylgi hollunum.
Kylfuberi má einungis bera/draga útbúnað leikmanns og veita honum ráð samkvæmt golfreglum.
Önnur afskipti algjörlega óheimil.
Kylfuberi skal aldrei hafa orð fyrir keppanda og skal halda öllum samskiptum við aðra keppendur í algjöru lágmarki.
Kylfuberi og leikmaður hans geta að sjálfsögðu ráðfært sig hvor við annan um einstök atvik í ráshópnum á hófstilltan og lítið áberandi hátt, en það er ávallt kylfingur sem tjáir sig við aðra keppendur.
Höfum það hugfast að golfleikur krefst mikillar einbeitingar og að minnsta áreiti getur komið keppanda úr jafnvægi.
Brot á framangreindu geta leitt til brottvikningar kylfubera eftir aðvörun dómar.
Brot á þessum reglum eru víti.

