Leikir og úrslit
Smelltu hér fyrir upplýsingar um leiki og úrslit
08:50 - 12:25 Grasblak 13 - 14 ára
12:25 - 15:45 Grasblak 15 - 16 ára og 17 - 18 ára
15:55 - 18:00 Grasblak 11 - 12 ára
Lengd leikja er um 9 mínútur og athugið að til að halda tíma dagskrá þá verða leikirnir flautaðir á á réttum tíma, því er mikilvægt að íþróttafólkið sé mætt og tilbúið.
Einnig þarf einn úr hvoru liði að samþykkja skorið eftir hvern leik hjá stigatöflu.
Aldurs- og kynjaflokkar
- 11 - 12 ára strákar
- 13 - 14 ára strákar
- 15 - 16 ára strákar
- 17 - 18 ára strákar
- 11 - 12 ára stelpur
- 13 - 14 ára stelpur
- 15 - 16 ára stelpur
- 17 - 18 ára stelpur
Keppnisfyrirkomulag / reglur
* 2 - 4 í liði
- Spilað er á átta völlum.
- Allir leikir eru 1 x 9 mín. Hraðaskipting eftir 5 mín.
- Lengd leikja gæti þó verið endurskoðuð eftir þátttöku.
- Ef liðin eru jöfn eftir 10 mín. þá er spilað úrslitastig.
- Ef lið mætir ekki til leiks innan þriggja mínútna þá tapast leikurinn 10-0.
- Mæti hvorugt lið til leiks er kastað upp á það hvort liðið vinnur og hvort tapar.
- Hvert lið má vera skipað fjórum leikmönnum en aðeins 2 eru inn á í einu.
Reglur
- 3 snertingar í mesta lagi á lið.
- Sami leikmaður má ekki gefa upp allan tímann.
- Það er bannað að snerta net og stíga yfir línu undir neti.
- Það má skipta þegar liðið vill, en passið að vera aldrei 3 inná í einu.
Monrad kerfi
Á mótinu er leikið eftir svokölluðu Monrad kerfi sem gengur út á sjálfvirka geturöðun.
Í fyrstu umferð er liðum raðað saman handahófskennt og spila lið tiltekinn fjölda leikja á hverju móti.
Linkur verður sýnilegur þar sem hægt er að fylgjast með Monrad kerfinu til að vita hvar og hvenær næstu leikir eru.