Fara á efnissvæði

Keppnisgreinar

Knattspyrna

Almennar upplýsingar

Föstudagur 31. júlí kl. 09:00 - 18:00. 

Keppnisgrein á mótinu þar sem skráning er nauðsynleg.

Upplýsingar um tímasetningar (Monrad app). Kemur þegar nær líður. 

 

  • kl. 09:00 - 12:00 11 - 12 ára
  • kl. 12:00 - 15:00 13 - 14 ára
  • kl. 15:00 - 18:00 15 - 18 ára

 

Aldurs- og kynjaflokkar

  • 11 - 12 ára stelpur / strákar
  • 13 - 14 ára stelpur / strákar 
  • 15 - 16 ára stelpur / strákar 
  • 17 - 18 ára stelpur / strákar 

 

Keppnisfyrirkomulag / reglur

11 - 12 ára (5 í liði en 8 í hóp)
13 - 14 ára (5 í liði en 8 í hóp)
15 - 16 ára (5 í liði en 8 í hóp) 
17 - 18 ára (5 í liði en 8 í hóp)

  • Fimm leikmenn eru inn á vellinum hverju sinni en varamenn geta verið allt að fjórir talsins. 
  • Ekkert mál er að skrá fleiri í hvert lið en gefið er upp. Fjöldinn miðast við fjölda verðlaunapeninga sem áætlaður er á verðlaunasæti.  
  • Hver leikmaður má einungis leika með einu liði. 
  • Sé lið uppvíst að spila með ólöglegan leikmann tapar liðið viðkomandi leik 3-0 og getur viðkomandi lið og leikmaður ekki unnið til verðlauna. 
  • Ef lið mætir ekki til leiks innan fimm mínútna þá tapast leikurinn 3-0.
  • Spilað er á 8 völlum og ræðst leiktími af fjölda þátttökuliða. 

Reglur

Upphafsspyrnur og útspörk: ekki má skora úr innsparki, upphafsspyrnu eða beint úr útsparki (þegar markmaður heldur á boltanum og sparkar út). 

Sending til baka: markmaður má ekki taka boltann með höndum innan vítateigs ef sent er til baka á hann. 

Aukaspyrnur: allar aukaspyrnur eru beinar og má skora beint úr þeim. Fjarlægð í varnarvegg skal vera um 6 metrar. 

Innspark og hornspyrnur: ef boltinn fer út fyrir hliðarlínu eða aftur fyrir endalínu skal taka útspark, hornspyrnu eða innspark. Við innspark má rekja boltann inn eða senda lága sendingu. Ekki má lyfta bolta upp fyrir hné við innspartk. Varnamaður má staðsetja sig í 6 metra fjarlægð frá þeim stað sem hornspyrna er tekin en í að lágmarki 1 metra frá þeim stað sem innspark er tekið. 

Vítaspyrnur: eru teknar á vítateigslínu fyrir miðju marki. 

Skiptingar: skiptingar eru frjálsar og ekki þarf að tilkynna dómara þær sérstaklega. Gert er rá fyrir að skiptingar eigi sér stað sem næst miðri hliðarlínu. 

Agarbrot: Dómari hefur vald til að beita gulum og rauðum spjöldum vegna agabrota. Í aldursflokknum 11-12 ára er nýjum leikmanni heimilt að koma inná völlinn í stað þess sem fór útaf með rautt spjald. 

Dómari hefur leyfi til að flauta leikinn af telji hann ástæðu til þess vegna aðstæðna á vellinum, jafnframt dæma öðru liðinu sigur eða báðum liðum 0 stig eftir ástæðu þess að flauta þurfti leikinn af.

Monrad kerfi
Á mótinu er leikið eftir svokölluðu Monrad kerfi sem gengur út á sjálfvirka geturöðun. 
Í fyrstu umferð er liðum raðað saman handahófskennt og spila lið tiltekinn fjölda leikja á hverju móti. 

Leikið er eftir reglum KSÍ.