Öllum flokkum
15. október 2021
Haukur Valtýsson: Bætt lýðheilsa þarf að fá meira rými á Alþingi
„Gleðin í hreyfingu, bætt lýðheilsa og betra samfélag þarf að fá meira rými á Alþingi, sveitarstjórnarfólk þarf að gera sér grein fyrir mikilvægi hreyfingar og lýðheilsu og möguleika íþróttafélaga um allt land til að sinna því,‟ segir Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ.
13. október 2021
Kæti með Skólablak í Hamarshöllinni
„Það er mjög gaman að sjá hvað börnin eru áhugasöm. Allir taka þátt og öllum finnst gaman í blaki,‟ segir Óli Þór júlíusson, verkefnastjóri hjá Blaksambandi Íslands og annar tveggja umsjónarmanna Skólablaksins. Það fór fram í Hamarshöllinni í Hveragerði í morgun.
12. október 2021
Sköpum öflugri íþróttahéruð með sameiginlegt hlutverk
Við verðum að ræða af alvöru hvert hlutverk og markmið íþróttahéraðanna skuli vera þannig að þau þjóni hlutverki sínu betur í samfélagi nútímans,“ skrifa þeir Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ, og Jóhann Steinar Ingimundarson varaformaður UMFÍ, í grein sem birtist eftir þá á visir.is í dag.
09. október 2021
Helga Guðrún, Engilbert og Valdimar sæmd heiðursmerki ÍSÍ
„Mér þykir afar vænt um þetta og er mjög þakklát. Þetta er viðurkenning fyrir störf okkar allra hjá UMFÍ,‟ segir Helga Guðrún Guðjónsdóttir, fyrrverandi formaður UMFÍ. Hún var á þingi ÍSÍ í dag sæmd Heiðurskrossi ÍSÍ. Engilbert Olgeirsson og Valdimar Leó Friðriksson voru heiðraðir á sama tíma.
08. október 2021
Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs boðar til kynningafunda
Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs mun kynna starfið á næstu dögum og verða kynningarfundir haldnir víðsvegar um landið á næstu vikum. Markmið með starfi samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs er að slíkt starf fari fram í öruggu umhverfi.
06. október 2021
Forsetinn kynnti leik Forvarnardagsins
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, heimsótti Laugalækjarskóla og Menntaskólann í Kópavogi í tilefni af Forvarnardeginum 2021 í dag. Þar ræddi hann við nemendur og kynnti fyrir þeim leik Forvarnardagsins.
05. október 2021
Framboðsfrestur rennur út á miðnætti
Frestur til að bjóða sig fram til setu í stjórn UMFÍ rennur út á miðnætti. Kosið verður um formann, setu í stjórn og varastjórn á 52. Sambandsþingi UMFÍ sem fram fer á Húsavík dagana 15. – 17. október næstkomandi. Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ, hefur gefið upp að hann ætli ekki að gefa kost á sér.
04. október 2021
UMFÍ í fyrsta sinn á þingi ÍBR
UMFÍ vinnur að stefnumótun fyrir ungmennafélagshreyfinguna. Í vinnunni felst að straumlínulaga frekar þá stefnu sem er til staðar og setja færri atriði á oddinn, að sögn Jóhanns Steinars Ingimundarsonar, varaformanns UMFÍ. Hann hélt ávarp á þingi ÍBR sem fram fór um helgina.
04. október 2021
Andleg líðan ungmenna í kastljósi Forvarnardagsins
„Orkudrykkir eru ekki leiðin til að komast í gegnum daginn, við verðum þvert á móti stefnulaus og orkulítil,‟ sagði Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, í ávarpi sínu á fjölmiðlafundi Forvarnardagsins 2021. Forvarnardagurinn fer fram í grunn- og framhaldsskólum landsins á miðvikudag.