Fara á efnissvæði

Öllum flokkum

Fréttir

Öllum flokkum

03. september 2021

Ný tækifæri í fjáröflun félaga

Einstaklingar geta fengið stuðning sinn við íþróttafélagið dreginn frá skatti. Það er mikil breyting í styrksöfnun félaga.  UMFÍ hvetur stjórnendur í íþróttahreyfingunni titl að kynna sér skattaafsláttinn sem innifalinn er í frumvarpi til laga um breytingar á gjöld almannaheillafélaga.

03. september 2021

Sportabler tekur við sem starfsskýrslukerfi ÍSÍ og UMFÍ

„Við erum spennt fyrir samstarfinu sem við höfum trú á að færi íþróttahreyfingunni upplýsingar sem hægt verður að nýta til þess að efla starfið enn meira,“ segir Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ. Hann skrifaði ásamt fulltrúum ÍSÍ og UMFÍ undir samstarfssamning við fyrirtækið Abler.

02. september 2021

Siggi stýrir Ungmennabúðum UMFÍ á Laugarvatni

„Ég er mjög spenntur að koma á Laugarvatn og halda áfram að byggja upp starfið þar á þeim góða grunni sem starf Ungmennabúðanna er reist á,“ segir Sigurður Guðmundsson, sem ráðinn hefur verið forstöðumaður Ungmennabúða UMFÍ á Laugarvatni út yfirstandandi skólaár.

01. september 2021

Guðný Lilja nýr framkvæmdastjóri Hrafna-Flóka

„Mér lýst alveg ótrúlega vel á þetta starf,“ segir Guðný Lilja Pálsdóttir, nýráðinn framkvæmdastjóri Héraðssambandsins Hrafna-Flóka og kom til starfa hún um miðjan ágúst. Hún tekur við því af Páli Vilhjálmssyni, sem hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra síðastliðin sex ár.

31. ágúst 2021

Víkingamótaröðinni lýkur í Heiðmörk

Víkingar mótaröðinni lýkur í Heiðmerkurlandinu laugardaginn 4. september 2021 þar sem hlaupaviðburðurinn NOW Eldslóðin er haldin. UMFÍ er í samstarfi við skipuleggjendur viðburðarins og veitir þeim viðurkenningar sem taka þátt í öllum viðburðunum sem mynda mótaröðina.

31. ágúst 2021

Sérstakir frístundastyrkir framlengdir til áramóta

Ákveðið hefur verið að framlengja sérstaka frístundastyrki fyrir börn af tekjulægri heimilum út árið 2021 og er stefnt að því að veita sams konar styrki eftir áramótin. Hægt er að sækja um styrkina með sambærilegum hætti og hefðbundinn frístundastyrk sveitarfélaga á Sportabler.

30. ágúst 2021

Ungmennaráðstefnu frestað

Ákveðið hefur verið að fresta ungmennaráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði fram yfir áramótin 2022 vegna heimsfaraldurs COVID-19.

30. ágúst 2021

Ertu með hugmynd sem Fræðslu- og verkefnasjóður getur hjálpað þér með?

Nú er búið að opna fyrir umsóknir í Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ. Umsóknarfrestur er til 1. október nk. Fræðslu- og verkefnasjóður UMFÍ hefur þann tilgang að styrkja félags- og íþróttastarf ungmennafélagshreyfingarinnar.

28. ágúst 2021

Gegn öllu ofbeldi

Af gefnu tilefni vill UMFÍ benda á leiðir sem unnt er að nýta þegar upp koma vísbendingar um ofbeldisverk af hvaða tagi sem er.