Fara á efnissvæði

Öllum flokkum

Fréttir

Öllum flokkum

09. apríl 2021

Mundu eftir að senda inn umsókn í Umhverfissjóð UMFÍ

Við minnum á að opið er fyrir umsóknir í Umhverfissjóð UMFÍ til 15. apríl næstkomandi. Umhverfissjóður UMFÍ er minningarsjóður Pálma Gíslasonar, fyrrverandi formanns UMFÍ. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að styrkþegi sé félagi eða aðildarfélag UMFÍ og að verkefnið sé umhverfisverkefni.

09. apríl 2021

Settu mark þitt á stefnu UMFÍ

UMFÍ vinnur nú að endurnýjun á stefnu sambandsins, sem ætlunin er að kynna á Sambandsþingi UMFÍ í október 2021.

25. mars 2021

Sigurjón sæmdur gullmerki UMFÍ

Sigurjón Sigurðsson, formaður aðalstjórnar HK, var sæmdur Gullmerki UMFÍ á aðalfundi félagsins í gær. Á sama fundi stóð hann upp úr formannsstólnum eftir 15 ára starf. Pétur Örn Magnússon er nýr formaður HK.

25. mars 2021

Samtal ungmennaráða

Ungmennaráð UMFÍ stendur fyrir rafræna viðburðinum Samtal ungmennaráða fimmtudaginn 8. apríl næstkomandi á milli klukkan 19:30 – 21:30.

24. mars 2021

María hjá HSÞ sæmd starfsmerki UMFÍ

Jónas Egilsson var endurkjörinn formaður HSÞ á ársþingi Héraðssambands Þingeyinga sem haldið var á Þórshöfn um helgina. María Sigurðardóttir var á sama tíma sæmd starfsmerki UMFÍ fyrir störf sín fyrir frjálsíþróttaráð HSÞ. Fjöldi mála var á dagskrá þingsins og margt gert.

24. mars 2021

Hámundur Örn er nýr framkvæmdastjóri UMFN

„Það eru mörg tækifæri í starfi félagsins. Bæjarfélagið er að stækka mikið og iðkendum að fjölga gríðarlega. Ég mun setja handbragð mitt á það og tek að mér að hjálpa til við að stækka félagið,“ segir Hámundur Örn Helgason, nýráðinn framkvæmdastjóri Ungmennafélags Njarðvíkur.

24. mars 2021

COVID 19: Allt íþróttastarf fellur niður á nýjan leik

Stjórnvöld kynntu harkalegar aðgerðir í dag í því skyni að hefta mögulega útbreiðslu breska afbrigðis kórónuveirunnar á Íslandi.  Íþróttastarf fellur niður á landsvísu frá og með miðnætti í kvöld (24. mars 2021) til 15. apríl.

24. mars 2021

Stöndum saman gegn COVID 19

Þjálfarar íþrótta- og ungmennafélaga lærðu margt nýtt í fyrra. Nú er mikilvægt að nýta þekkinguna, segir Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ.  Hún hvetur til samstöðu því mörg börn séu smituð og því ekki gott að fara á svig við reglur. Við það sé hætta á að smitum fjölgi.

18. mars 2021

Rafíþróttir á Unglingalandsmóti UMFÍ

Keppt verður í nokkrum rafíþróttaleikjum á Unglingalandsmóti UMFÍ sem verður haldið á Selfossi um verslunarmannahelgina. Hallbera Eiríksdóttir hjá UMFÍ segir það frábæra viðbót og auka fjölbreytni mótsins. Rætt er við Hallberu í fylgiriti Fréttablaðsins um rafíþróttir.