Allar fréttir
16. mars 2020
Ný dagsetning fyrir ungmennaráðstefnu
Vegna þeirrar stöðu sem er í samfélaginu okkar í dag hefur ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði fengið nýja dagsetningu.
15. mars 2020
Íris Grönfeldt sæmd Gullmerki UMFÍ
Íris Grönfeldt var sæmd Gullmerki UMFÍ á ársþingi UMSB í síðustu viku. Íris er vel að Gullmerkinu komin eftir ómetanlegt starf sem sjálfboðaliði fyrir frjálsar íþróttir í áranna rás. Þeir Brynjólfur Guðmundsson og Ingvi Árnason voru jafnframt sæmdir starfsmerki UMFÍ fyrir gott starf.
15. mars 2020
Samkomubann mótar íþróttastarfið
Heppilegt er talið að gera ekki ráð fyrir því að íþróttastarf leik- og grunnskólabarna fari af stað fyrr en viku eftir að samkomubann verður sett á í kvöld. Æfingar eldri iðkenda og fullorðinna lúti ströngum skilyrðum. UMFÍ mælist til þess að allir fari að tilmælum yfirvalda gegn COVID-19 veirunni.
14. mars 2020
Mikil samstaða innan íþróttahreyfingarinnar
„Fólk er einfaldlega að vinna í því að láta púsluspilið ganga upp. Sú vinna heldur áfram um helgina,‟ segir Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ. Hún og Líney Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ, hafa fundað stíft í vikunni með sambandsaðilum og Almannavörnum vegna samkomubannsins.
13. mars 2020
Samkomubann og nánari leiðbeiningar væntanlegar
Í ljósi nýrra frétta frá yfirvöldum um samkomubann sem gildir tekur á miðnætti 15. mars næstkomandi (aðfaranótt mánudags) og á að vara í mánuð er ljóst að endurskoða þarf og takmarka starfsemi á vegum aðildarfélaga UMFÍ. Unnið er að nánari leiðbeiningum sem verða birtar í dag.
13. mars 2020
Áhrif samkomubanns á íþrótta- og æskulýðsstarf
Stjórnvöld virkjuðu í dag heimildir sóttvarnarlaga til að takmarka samkomur á Íslandi. Í þeim felst sú fordæmalausa aðgerð að takmarkanir eru settar á allar skipulagðar samkomur vegna farsóttar, þ.e. samkomubann sem tekur gildi á miðnætti á sunnudagskvöld til næstu fjögurra vikna.
11. mars 2020
Upplýsingar vegna kórónaveirunnar COVID-19
Á öllum starfsstöðvum UMFÍ; ungmennabúðum á Laugarvatni og þjónustumiðstöðvum hefur verið gripið til viðbragða sem felast í sértækum þrifum á sameiginlegum rýmum og sótthreinsandi spritt er aðgengilegt í almenningsrýmum. Þá hafa sambandsaðilar UMFÍ gripið til ráðstafana.
06. mars 2020
Fyrirtækjaboðhlaup BYKO í fyrsta sinn í Kópavogi
„Okkur hjá BYKO finnst Íþróttaveisla UMFÍ ótrúlega jákvæður og upplífgandi viðburður. Við höfum mikla trú á að veislan styrki Kópavog og viljum gera allt til að auka hreyfingu og lýðheilsu í bænum,” segir Árni Reynir Alfreðsson, markaðsstjóri BYKO.
05. mars 2020
Algirdas, Guðmundur, Lárus og Sigurður sæmdir starfsmerki UMFÍ
Stálúlfurinn Algirdas Slapikas, Guðmundur Sigurbergsson, Lárus B. Lárusson og Sigurður Rúnar Magnússon voru sæmdir starfsmerki UMFÍ á ársþingi UMSK sem fram fór í vikunni. Jóhann Steinar Ingimundarson, sem situr í stjórn UMFÍ, sótti þing UMSK og sæmdi fjórmenningana viðurkenningunni.