Mikið um að vera á Landsmóti UMFÍ 50+
Hellingur af viðburðum verða í boði á Landsmóti UMFÍ 50+, sem fram fer í Hrafnagilshverfi, á Akeyri og Dalvík síðustu helgina í júní. Keppnisgreinar eru opnar þátttakendum sem verða fimmtíu ára á árinu og öllum eldri. Viðkomandi þarf ekki að vera skráður í íþróttafélag, aðeins langa til að taka þátt í keppni á mótinu.
Keppt verður í 18 greinum frá fimmtudegi til sunnudags. Greinarnar eru: Boccía, skotfimi, ringó og götuhjólreiðar, sund , badminton, golf, bridds, pokavarp, pílukast, frjálsar íþróttir og brennibolti, pútt, skák, frisbígolf, bogfimi og stígvélakast.
Keppt verður í brennibolta laugardaginn 27. júní. Þetta er grein fyrir 18 ára og eldri.
Síðar sama kvöld verður matar- og skemmtikvöld á veitingastaðnum Vitanum á Akureyri.
Til viðbótar við mótið verður fjölskyldufjör í Hrafnagilshverfi á milli klukkan 13:00 – 15:00 sunnudaginn 28. júní.
Þar geta fjölskyldur komið og geta allir gestir tekið þátt og prófað fjölda greinar. Þar á meðal er fjölskylduhlaup, pokavarp, göngufótbolti, frisbígolf, bogfimi og petanque. Auk þess verða hestar teymdir undir börnum.
Sveitamarkaður verður opnaður í tilefni dagsins.
Þú getur skoðað alla dagskrá, fundið ítarlegri upplýsingar og skráð þig á mótið á umfi.is.