Fara á efnissvæði

Keppnisgreinar

Knattspyrna

Æfingasvæði við Skallagrímsvöll. Sunnudagur kl. 09:00 - 17:30

Leikir og úrslit

Smelltu hér fyrir upplýsingar um leiki og úrslit

Smelltu hér fyrir upplýsingar um röðun verðlaunasæta

09:00 - 12:00 Fótbolti 11 - 12 ára
12:00 - 14:45 Fótbolti 13 - 14 ára
14:45 - 17:30 Fótbolti 15 - 16 ára og 17 - 18 ára

Lengd leikja er um 12 mínútur. 

Aldurs- og kynjaflokkar

  • 11 - 12 ára strákar
  • 13 - 14 ára strákar
  • 15 - 16 ára strákar
  • 17 - 18 ára strákar
  • 11 - 12 ára stelpur
  • 13 - 14 ára stelpur
  • 15 - 16 ára stelpur
  • 17 - 18 ára stelpur

 

Keppnisfyrirkomulag / reglur

11 - 12 ára (5 í liði en 8 í hóp)
13 - 14 ára (5 í liði en 8 í hóp)
15 - 16 ára (5 í liði en 8 í hóp) 
17 - 18 ára (5 í liði en 8 í hóp)

  • Ekkert mál er að skrá fleiri í hvert lið en gefið er upp. 
  • Fjöldinn miðast við fjölda verðlaunapeninga sem áætlaður er á verðlaunasæti.  
  • Leiktími er 1x12 mín. 
  • Leikir hefjast á 20 mínútna fresti. 
  • Heildarfjöldi í hverjum leikmannahópi er mest 8 leikmenn, en 5 eru inn á hverju sinni. 
  • Hver leikmaður má einungis leika með einu liði. 
  • Sé lið uppvíst að spila með ólöglegan leikmann tapar liðið viðkomandi leik 3-0 og getur viðkomandi lið og leikmaður ekki unnið til verðlauna. 
  • Ef lið mætir ekki til leiks innan fimm mínútna þá tapast leikurinn 3-0.

Reglur

Upphafsspyrnur og útspörk: ekki má skora úr innsparki, upphafsspyrnu eða beint úr útsparki (þegar markmaður heldur á boltanum og sparkar út). 

Sending til baka: markmaður má ekki taka boltann með höndum innan vítateigs ef sent er til baka á hann. 

Aukaspyrnur: allar aukaspyrnur eru beinar og má skora beint úr þeim. Fjarlægð í varnarvegg skal vera um 6 metrar. 

Innspark og hornspyrnur: ef boltinn fer út fyrir hliðarlínu eða aftur fyrir endalínu skal taka útspark, hornspyrnu eða innspark. Við innspark má rekja boltann inn eða senda lága sendingu. Ekki má lyfta bolta upp fyrir hné við innspartk. Varnamaður má staðsetja sig í 6 metra fjarlægð frá þeim stað sem hornspyrna er tekin en í að lágmarki 1 metra frá þeim stað sem innspark er tekið. 

Vítaspyrnur: eru teknar á vítateigslínu fyrir miðju marki. 

Skiptingar: skiptingar eru frjálsar og ekki þarf að tilkynna dómara þær sérstaklega. Gert er rá fyrir að skiptingar eigi sér stað sem næst miðri hliðarlínu. 

Agarbrot: Dómari hefur vald til að beita gulum og rauðum spjöldum vegna agabrota. Í aldursflokknum 11-12 ára er nýjum leikmanni heimilt að koma inná völlinn í stað þess sem fór útaf með rautt spjald. 

Dómari leyfi til að flauta leikinn af telji hann ástæðu til þess vegna aðstæðna á vellinum, jafnframt dæma öðru liðinu sigur eða báðum liðum 0 stig eftir ástæðu þess að flauta þurfti leikinn af.

Monrad kerfi
Á mótinu er leikið eftir svokölluðu Monrad kerfi sem gengur út á sjálfvirka geturöðun. 
Í fyrstu umferð er liðum raðað saman handahófskennt og spila lið tiltekinn fjölda leikja á hverju móti. 

Leikið er eftir reglum KSÍ.