Fara á efnissvæði

Svæðastöðvar

Svæðastöðvar íþróttahreyfingarinnar

UMFÍ og ÍSÍ koma á fót átta svæðastöðvum með stuðningi frá mennta- og barnamálaráðuneytinu. Samtökin hafa undirritað samning um eflingu íþróttastarfs á landsvísu með því að koma á fót svæðastöðvum og hvatasjóði. Svæðastöðvunum er ætlað að styðja við íþróttahéruð landsins við innleiðingu á stefnu íþróttahreyfingarinnar og ríkisins í íþróttamálum auk þess að auka þátttöku barna og ungmenna í íþróttastarfi með sérstaka áherslu á þátttöku fatlaðra barna, barna af tekjulægri heimilum og barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Tillögur um stofnun starfsstöðvanna voru samþykktar á þingi ÍSÍ vorið 2023 og á þingi UMFÍ haustið 2023.

Verkefnastjóri

Hanna Carla Jóhannsdóttir stýrir innleiðingu og samræmingu á svæðastöðvunum. Hanna Carla er íþróttafræðingur að mennt og með meistaragráðu í forystu og stjórnun.

Hanna Carla hefur aðsetur í þjónustumiðstöð UMFÍ. Netfang hannacarla@isi.is

Markmið svæðastöðva

Hlutverk svæðastöðvanna er að þjónusta íþróttahéruðin í nærumhverfi sínu með samræmdum hætti. Horft er til þess að sterkari íþróttahéruð og svæðastöðvar um allt land auki skilvirkni innan íþróttahreyfingarinnar og geri þeim kleift að takast á við núverandi og fyrirséð verkefni. Styrkja stefnumótandi vinnu og aðgerðir á landsvísu og stuðla þannig að farsæld barna og annarra sem nýta þjónustu hreyfingarinnar. 

Framtíðarsýn

Framtíðarsýn með fyrirkomulagi svæðastöðvanna er að fyrirkomulagið skili sér í betri nýtingu á mannauði. Stuðningur við einstaka íþróttafélög verði meiri og þar af leiðandi verði þjónusta við iðkendur betri. Jafnframt er það framtíðarsýn að sem flestir hafi tækifæri til að stunda íþróttir á því sviði sem þeir kjósa, hvort heldur til ánægju, heilsubótar eða með afreksárangri að markmiði. 

Átta svæðastöðvar

Landinu er skipt upp í 25 íþróttahéruð í 64 sveitarfélögum. Átta svæðastöðvum verður komið á fót með tveimur starfsmönnum á hverri stöð. Taflan sýnir skiptingu svæðastöðva eftir íþróttahéruðum, sveitarfélögum og fjölda íbúa.

LANDSVÆÐI

ÍÞRÓTTAHÉRUÐ

FJÖLDI SVEITARFÉLAGA

FJÖLDI ÍBÚA

Vestfirðir

HSV, HSB, HHF, HSS

9

7.372

Vesturland

HSH, ÍA, UDN, UMSB

9

17.497

Norðurland vestra

UMSS, USAH, USVH

5

7.452

Norðurland eystra

HSÞ, ÍBA, UÍF, UMSE

11

31.793

Austurland

UÍA, USÚ

5

13.679

Suðurland

HSK, ÍBV, USVS

14

31.366

Suðurnes

ÍRB, ÍS

4

30.979

Höfuðborgarsvæðið

ÍBH, ÍBR, UMSK

7

247.241

Aðdragandi og skipulag

  • UMFÍ og ÍSÍ hafa lengi stafrækt vinnuhópa til að skoða stöðu íþróttahéraða í landinu. Alls eru íþróttahéruð landsins 25 um land allt, með ólika starfsemi og virkni.  

    Úthlutun fjármagns frá lottó til íþróttahéraða og aðildarfélaga þeirra hefur verið mismunandi og reglur hjá UMFÍ og ÍSÍ ólíkar. Sameiginlegar nefndir samtakanna hafa unnið tillögur varðandi samræmda skiptingu lottófjármuna sem stjórnir og nefndir samtakanna hafa komið sér saman um.

    Hagsmunaaðilar um allt land, stórir sem smáir, koma að skipulaginu. Tekið er tillit til víðtækra sjónarmiða. 

    Áhersla er á að niðurstaðan tryggi aukið fjármagn út á land, samræmdar reglur verði óháð aðild að samtökunum og sérstök áhersla lögð á að uppfylla markmið samtakanna og stjórnvalda. 

  • Tillaga sem samþykkt var á þingi um íþróttahéruð:

    „53. Sambandsþing UMFÍ haldið á Hótel Geysi í Haukadal 20.-22. október 2023, samþykkir að UMFÍ, í samráði við ÍSÍ og íþróttahéruðin, vinni að því að setja á laggirnar 8 starfssvæði um landið, til stuðnings íþróttahéruðum landsins. Verkefnið feli hvorki í sér breytingu á lýðræðislegri skiptingu íþróttahéraða né breytingar á atkvæðaskiptingu á þingum ÍSÍ og UMFÍ. Skilyrði fyrir slíkum starfssvæðum er að hægt verði að tryggja fjárstuðning frá ríkinu til verkefnisins, með hliðsjón af svæðisskiptum verkefnum ríkisins sem falla vel með verkefnum og skyldum íþróttahreyfingarinnar.“

  • Eftirfarandi tillaga var samþykkt á 53. Sambandsþing UMFÍ. 

    Lottóreglur og lottóúthlutanir

    I. Skipting lottótekna UMFÍ:

    1. 79% til sambandsaðila.
    2. 14% til UMFÍ.
    3. 7% til Fræðslu- og verkefnasjóðs UMFÍ, úthlutun samkvæmt reglugerð sjóðsins.

    II. Skipting lottótekna sambandsaðila UMFÍ: 

    Hluti sambandsaðila (79%) verði skipt þannig:

    • 15% til reksturs svæðisskrifstofa íþróttahéraða.
    • 85% til íþróttahéraða eftir íbúafjölda 18 ára og yngri 31. desember næstliðins árs.

    III. Regla vegna skiptingar til reksturs svæðisskrifstofa íþróttahéraða

    Úthlutun á hluta til reksturs svæðisskrifstofa er ekki háð skilyrðum. 

    IV. Regla vegna skiptingar til sambandsaðila

    Skilyrði fyrir úthlutun hvers árs til sambandsaðila er að fulltrúi þeirra hafi mætt á síðastliðið sambandsþing / sambandsráðsfund. Hlutur þeirra sem mæta ekki skerðist og er hlutfall ákvarðað af stjórn UMFÍ og kynnt með fundarboði. Stjórn UMFÍ er einnig heimilt að víkja frá skerðingum vegna mætingar komi upp óvænt og ófyrirséð atvik (t.d. veður eða óhöpp).

    Eigi íþróttahérað ekki aðild að UMFÍ skal hlutur þess reiknaður í samræmi við reglurnar um íbúafjölda 18 ára og yngri 31. desember næstliðins árs. Hlutdeild íþróttahéraðsins er deilt út til UMFÍ en áður skal taka tillit til þess að ef innan íþróttahéraðsins sé félag með beina aðild að UMFÍ þá fær viðkomandi félag fjárhæð sem nemur hlutdeild þess af iðkendum 18 ára og yngri innan íþróttahéraðsins skv. nýjustu starfsskýrsluskilum í skilakerfi íþróttahreyfingarinnar.

    V. Um úthlutunFyrir 15. hvers mánaðar skal úthluta öllum ágóða sem borist hefur fyrir næsta mánuð á undan. Með hverri greiðslu skal fylgja skilagrein sem sýni forsendur fyrir úthlutun.

    Fyrirvari
    Þessar breytingar taka gildi eftir að samningar nást við ríkisvaldið um að það leggi fram sambærilegan fjárhagslegan stuðning til svæðisskrifstofa íþróttahéraða, m.a. með vísan til farsældarlaga nr. 86/2021. Fram til þess tíma gilda áðurgildandi reglur. Hafi samkomulag milli UMFÍ, ÍSÍ og stjórnvalda ekki náðst fyrir sambandsþing UMFÍ 2025, skal sambandsþing þá taka afstöðu til framhalds málsins.